Morgunverðarfundur um sjálfsmynd og kynhegðun unglinga

Fimmtudagur 24. september 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »

Samstarfshópurinn Náum áttum heldur morgunverðarfund 30. september 2009 kl. 8.15 – 10.00 á GRAND Hóteli í Reykjavík. Umræðuefnið er sjálfsmynd og kynhegðun unglinga.

Dagskrá fundarins verður á þessa leið:

  1. Dagbjört Ásbjörnsdóttir, deildastjóri ÍTR, MA í kynja og kynlífsfræðum;
    „Kenndu mér að segja já, þá veit ég hvenær ég á að segja nei“
  2. Ungmenni úr Ungmennaráði Barnaheilla
    Ræða um auglýsingar og áhrif þeirra á ungmenni
  3. Sólrún Ósk Lárusdóttir, sálfræðingur hjá Fjölskyldumiðstöð Árborgar
    Barn í blóma – forvörn til framtíðar

Fundarstjóri: Salbjörg Bjarnadóttir » meira..

Árlegt skákmót í tilefni alþjóðlegs geðheilbrigðisdags

Fimmtudagur 24. september 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »

Í tilefni alþjóðlegs geðheilbrigðisdags hafa undanfarin ár verið haldin skákmót á vegum Hróksins og Skákfélags Vinjar.björn sölvi gegn lilju, perlan 2007

Skákfélag Vinjar er staðsett í Vin, athvarfi Rauða kross Íslands fyrir fólk með geðraskanir, Hverfisgötu 47 í Reykjavík.

Þar sem hátíðardagskrá verður að þessu sinni í Mjóddinni, hefur taflfélagið Hellir, sem einmitt staðsett er þar, bæst í hópinn og er meiningin að halda glæsilegt mót laugardaginn 10. október, klukkan 16:00, að loknum ræðum og tónlistaratriðum og formlegri dagskrá er lokið. » meira..

Fyrirlestur um útivist

Miðvikudagur 23. september 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »

Í Vin, athvarfi Rauða kross Íslands fyrir fólk með geðraskanir, eru m.a. haldnir heilsufundir á fimmtudögum klukkan 13.

Á morgun, fimmtudaginn 24. september, kemur í heimsókn hún Ingibjörg Eggertsdóttir, starfsmaður á landsskrifstofu Rauða krossins. Ingibjörg er mikil útivistarkona og hefur farið í margar lengri og skemmri gönguferðir, bæði innanlands og -utan. Mun hún fara yfir einhverjar af styttri ferðum sínum í máli og myndum og gefa góð ráð.

Á hverjum fimmtudegi fram í desember verða fyrirlestrar á vegum Vinjar, hvort sem heldur er í stofunni þar eða einhvernsstaðar utan athvarfsins, um heilsutengd málefni.

Ókeypis námskeið og ráðgjöf

Þriðjudagur 22. september 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »

Sjálfboðaliðar Rauða krossins hafa í samstarfi við SÍBS og Háskóla Íslands unnið að því að kortleggja upplýsingar um frístundir og námskeið sem kosta lítið eða ekkert. Markmiðið er að safna upplýsingum í gagnabanka á einn stað til að auðvelda fólki að nýta þau tækifæri til afþreyingar og fræðslu sem standa landsmönnum til boða.

Afraksturinn er þessi bæklingur, sem hlotið hefur nafnið „Hvað er í boði?“(PDF  552kb) síðast uppfærður 4. ágúst 2009. Í bæklingnum eru ítarlegar upplýsingar. Hægt er að nálgast „Hvað er í boði?“ á vefsíðu Rauðakrosshússins, raudakrosshusid.is, og SÍBS, sibs.is. Bæklingurinn er á prentvænu formi og eru stofnanir og félagasamtök hvött til að prenta hann út og hafa aðgengilegan sem flestum. » meira..

Fyrirlestur um meðvirkni

Þriðjudagur 22. september 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »

Fimmtudaginn 1.okt kl 20:00 – 22:00 mun Díana Ósk Óskarsdóttir ICADC ráðgjafi vera með fyrirlestur í húsi Geðhjálpar Túngötu 7 og mun hann fjalla um meðvirkni. Í stuttu máli segir Díana að meðvirkni sé fjöldskyldusjúkdómur. Ef ein manneskja er meðvirk þá hefur það áhrif á alla í kringum hann. Hún mun tala um hverjir geta orðið meðvirkir, einkenni meðvirkni og hvernig er hægt að vinna sig frá meðvirkni. » meira..

Lengdur opnunartími í Geðhjálp á miðvikudögum

Þriðjudagur 22. september 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »

Á miðvikudögum mun Geðhjálp vera með félagsmiðstöðina opna  til 15:30.

Dagskránin er sem hér segir:

Kl 10-14  Í byrjun dags er opið í listsmiðju undir leiðsögn Örnu Jónsdóttur. Það er ýmislegt gert sér til gamans og má þar meðal annars nefna glermálun, kertamálun, kortagerð og margt margt fleira. Allir velkomnir að koma og vera með.

Kl 12-13 Hádegismatur er auðvitað reiddur fram undir vægu gjaldi – að hætti Ingibjargar.

Kl 13-14  12 sporakynning  en næsta miðvikudag munu SASA samtökin koma og kynna sig. SASA samtökin eru samtök fólks sem hefur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Allir sem hafa áhuga á að kynna sér hvað SASA samtökin standa fyrir og eru að gera eru hjartanlega velkomnir.

Kl 14-15:30 Kaffihúsastemming og opið í billjard, listsmiðju og tölvuveri . Einnig verður kaffi og kökur til sölu gegn vægu gjaldi en næsta miðvikudag mun ágóðinn verða til styrktar listsmiðju Geðhjálpar.

Geðhjálp.is

Geðveikir dagar á Suðurnesjum

Föstudagur 18. september 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »
Dagskrá: Geðveikir dagar á Suðurnesjum 2009

Smelltu á myndina til að stækka hana

Geðveikir dagar verða haldnir 22. og 23. september 2009 á Suðurnesjum.

Geðveikir dagar eru fyrir alla, markmið daganna er að vekja hin dæmigerðu „Jón og Gunnu“ til meðvitundar um að huga að eigin heilsu. Góð geðheilsa felur ekki aðeins í sér að vera laus við geðsjúkdóma. Hún einkennist meðal annars af jákvæðri sjálfsmynd, ánægju í lífi og starfi og getu til að aðlagast breytilegum aðstæðum.

Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup.

Björgin.is

Afmælisskákmót í Vin

Föstudagur 18. september 2009 1 athugasemd »

Afmælisskákmót til heiðurs forsetanum Gunnari Björnssyni, forseta Skáksambands Íslands, verður haldið afmælismót í Vin, athvarfi Rauða krossins, á mánudaginn þann 21. sept, kl. 13:00. » meira..

Kynning á starfsemi

Miðvikudagur 16. september 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »

Bergþór G. Böðvarsson, fulltrúi notenda,  sér um að skrá niður nöfn þeirra sem hafa áhuga á að kynna sína starfsemi í Mjóddinni 10. október næstkomandi.

Þið sem hafið áhuga endilega sendið honum póst með nafni og símanúmeri á netfangið bergbo@landspitali.is

Undirbúningur í fullum gangi

Laugardagur 29. ágúst 2009 1 athugasemd »

20081010-PA102106

Undirbúningur að dagskrá í tilefni af Alþjóða geðheilbrigðisdagsins, laugardaginn 10. október er í fullum gangi.

Í ár verður skemmtidagskráin í Mjóddinni í Breiðholti og er unnið í því að fá til liðs við okkur tónlistarfólk og aðra til að skemmta gestum og gangandi. Kynning úrræða í geðheilbrigðismálum verður á sínum stað, veitingar á vægu verði og ýmislegt fl. fyrir fólk á öllum aldri.