Mánudagur 5. október 2009
Láttu skoðun þína í ljós.. »
Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina
Geðrækt er þýðing á því sem á ensku er nefnt „mental health promotion“ og er þá átt við allt það sem gert er til að hlúa að geðheilsunni. Þar sem geðrækt er frekar nýtt hugtak getur verið gott að útskýra það með tilvísun í líkamsrækt. Allir vita hvað líkamsrækt er og þekkja mikilvægi þess að rækta líkamann til að draga úr líkamlegum kvillum. Þetta er þó langt frá því að vera tvennt aðskilið. Það að rækta líkamann hefur bein áhrif á andlega líðan og því er fimmta geðorðið hvatning um að hreyfa sig daglega. Flestir kannast við þá vellíðan sem fylgir því að taka á líkamlega. Í kjölfar slíkra átaka flæða hormón um líkamann sem veita okkur vellíðan sem er eftirsóknaverð og heilbrigð. » meira..
Sunnudagur 4. október 2009
Láttu skoðun þína í ljós.. »
Í næsta þætti Í næruveru sálar sem er sýndur mánudaginn 5. október kl 21:30. Gestir þáttarins að þessu sinni eru Herdís Benediktsdóttir, Ragnheiður J. Sverrisdóttir verkefnastjóri og Bergþór Grétar Böðvarsson fulltrúa notenda á Geðsviði LSH. Sagt er frá nýútgefinni bók Geðveikar batasögur og Alþjóða geðheilbrigðisdeginum sem verður haldinn í Mjóddinni 10. október 2009. Á geðveikum nótum næsta mánudagskvöldi.
Hægt er að horfa á þáttinn beint á InnTV eða endursýningu hans á InnTV vefnum þegar lengra líður.
Um þáttinn:
Í þættinum Í nærveru sálar er markmiðið að skoða ýmis sálfræðileg málefni og málefni tengd þroska einstaklingsins. Reynt verður að velja málefni sem áhorfendum finnst e.t.v að hafi ekki fengið mikla umfjöllun í þjóðfélaginu, málefni sem brenna á eða málefni sem eru áhugaverð vegna sérstöðu eða áhrifa sem þau vekja. Meginreglan verður sú að í þáttinn koma gestir, fagaðilar eða fólk með reynslu í því málefni sem er til umræðu hverju sinni.
Sunnudagur 4. október 2009
Láttu skoðun þína í ljós.. »
Mæður sem reykja á meðgöngu setja börn sín í aukna áhættu á því að stríða við geðræn vandamál, svo sem ranghugmyndir og ofskynjanir. Rannsókn á vegum háskólanna í Cardiff, Notthingham, Bristol og Warwick bendir til þess, en hún er hluti af rannsókn sem lengi hefur veri ðí gangi, og kallast Avon Longditudinal Study of Parents and Children. Er þar reynt að skoða hvernig erfðir og umhverfi hafa áhrif á heilsu fólks.
Rannsóknin sem hér um ræðir var gerð í Bretlandi á meðal tólf ára barna. Niðurstaðan var sú að ef mæður barnanna höfðu reykt á meðgöngu voru 20% meiri líkur á því að börnin stríddu við fyrrnefnd vandamál. Tengingin var hins vegar 84% sterkari ef mæðurnar höfðu reykt 20 sígarettur á dag eða meira. Greint er frá þessu í tímaritinu British Journal of Psychiatry.
Tekið af mbl.is(3. okt ‘09) og að auki beinn tengill á greinina sjálfa á The British Journal of Psychiatry.
Sunnudagur 4. október 2009
Láttu skoðun þína í ljós.. »
Lærðu af mistökum þínum
Þriðja geðorðið fjallar um það að halda áfram að læra svo lengi sem við lifum. Fjórða geðorðið er um mikilvægasta lærdóminn; það að læra af mistökunum. Það er mikilvægt að átta sig á því að enginn hefur lofað því að lífið verði auðvelt og alltaf sanngjarnt. Með því að gera ráð fyrir mótlæti er hægt að vinna sér inn smá forskot og láta það ekki koma sér á óvart þegar mótlæti eða erfiðleikar gera vart við sig. Eins er það með mistökin. Allir gera einhvern tímann mistök, það er eins gott að sætta sig við það strax. Enginn er fullkominn og það sem betra er: enginn getur ætlast til þess af okkur að við séum fullkomin. » meira..
Laugardagur 3. október 2009
Láttu skoðun þína í ljós.. »
Það verður sannkölluð írsk veisla hjá okkur Kópavogsbúum í október þegar við höldum írska menningarhátíð. Hátíðin stendur yfir frá 2. til 11. október og verður ýmislegt í boði fyrir alla fjölskylduna. » meira..
Laugardagur 3. október 2009
Láttu skoðun þína í ljós.. »
Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir
Þröngsýni er ekki talinn kostur og það þykir ekki eftirsóknavert að staðna. Til að koma í veg fyrir stöðnun er mikilvægt að tileinka sér víðsýni og takast á við lífið með jákvæðum og opnum huga. Jákvætt og opið hugarfar eykur umburðarlyndi dregur úr fordómum og hjálpar okkur að halda áfram að þroskast út lífið. Það er ekki farsælt að halda fast í eigin skoðanir hvað sem á dynur. Mun farsælla er að hlusta á aðra í kringum sig með opnum huga og vera tilbúin að læra af þeim og endurmeta eigin skoðanir þegar það á við. » meira..
Föstudagur 2. október 2009
Láttu skoðun þína í ljós.. »
Hlúðu að því sem þér þykir vænt um
Þeim sem gengur vel og líður vel í lífinu eiga það sameiginlegt að hlúa að því sem þeim þykir vænt um. Það er mikilvægt að hafa eitthvað sem manni þykir vænt um, rækta þá væntumþykju og hlúa vel að henni. Það getur verið breytilegt frá manni til manns hvað eða hverja þeim þykir vænt um. Það getur verið fjölskyldumeðlimur, vinur, gæludýr eða jafnvel planta. Eitthvað sem lifir og þarf ást og umhyggju frá öðrum til að geta dafnað. Það gefur lífi fólks tilgang að finna að einhver þarf á umhyggju þess að halda og vita að manns yrði saknað ef maður væri ekki hér á morgun. » meira..
Fimmtudagur 1. október 2009
Láttu skoðun þína í ljós.. »
Hugsaðu jákvætt það er léttara
Geðorð Geðræktar eru byggð á því sem einkennir farsælt fólk og eru þannig ábendingar til þeirra sem sækjast eftir velgengni og vellíðan í lífinu. Fyrsta geðorðið “Hugsaðu jákvætt” er undirstaða vellíðunar því án jákvæðra hugsana er engin vellíðan. » meira..
Miðvikudagur 30. september 2009
Láttu skoðun þína í ljós.. »
Forvarnardagur 2009 er haldinn í öllum grunnskólum landsins í dag. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu.
Forvarnardagurinn er haldin að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
Verkefnið er stutt af lyfjafyrirtækinu Actavis.
- Rannsóknir hafa leitt í ljós að unglingar foreldra sem vita gjarnan hvar þeir eru á kvöldin og með hverjum, eru ólíklegri til að neyta fíkniefna en þeir unglingar sem eru undir minna eftirliti.
- Því meiri tíma sem foreldrar verja með unglingum því ólíklegra er að þeir leiðist út í fíkniefnaneyslu.
- Þeir unglingar sem telja sig auðveldlega geta fengið stuðning frá foreldrum sínum eru ólíklegri en aðrir til að leiðast inn á braut fíkniefnaneyslu.
- Foreldrar sem þekkja aðra foreldra í hverfinu og vini barna sinna draga úr líkum á því að unglingar ánetjist fíkniefnum. Það þarf heilt þorp til að ala upp eitt barn.
- Samstarf foreldra, þar með talið þátttaka í skólastarfi, æskulýðs- og íþróttastarfi og foreldrarölt, er mjög af hinu góða. Þekktu foreldra skólafélaga og vina unglinga þinna og vertu hluti af samfélagi og neti foreldra. Láttu þig varða hag unglinga almennt.
- Unglingar sem stunda skipulagt íþrótta-og æskulýðsstarf undir leiðsögn ábyrgra aðila eru ólíklegri til að leiðast út í fíkniefnaneyslu eða aðra óæskilega hegðun.
- Því lengur sem unglingar sniðganga áfengi því ólíklegra er að þeir ánetjist fíkniefnum. Hvert ár skiptir á máli.
- Öflugt forvarnarstarf þarf að beinast að því að bæta umhverfi unglinga. Miklu skiptir að allir vinni saman; foreldrar, kennarar og þeir sem skipuleggja íþrótta- og æskulýðsstarf. Allir þessir aðilar verða að leggjast á eitt eigi góður árangur að nást. Forvarnarstarf er grasrótarstarf.
Nánari upplýsingar um hvernig þú getur tekið þátt er að finna á vefsíðu forvarnadagur.is
Þriðjudagur 29. september 2009
Láttu skoðun þína í ljós.. »
Þann 22. febrúar 2009 var opnaður Geðspekivefur, vefur um geðheilbrigði og geðrækt.
Markmið Geðspekivefsins er að skapa jákvæða umræðu um geðheilsu og vekja athygli á hárri tíðni álagsþátta meðal háskólanema. Vefnum er ætlað að dýpka þekkingu á geðheilbrigði, geðröskunum, áhættuþáttum og meðferðarúrræðum og stuðla þannig að geðheilbrigði.
Slóð vefsins er ged.hi.is