Skákmót verður haldið í göngugötunni í Mjódd, laugardaginn 10. október í tilefni alþjóðlegs geðheilbrigðisdags. Skráning hefst klukkan 15 en mótið byrjar kl. 15:30. Skákfélag Vinjar, Hrókurinn og Taflfélagið Hellir sameinast um mótshald að þessu sinni og stefnt er á metþátttöku en 39 skráðu sig til leiks í fyrra er mótið var í Perlunni. » meira..
Hellir, Hrókurinn og Skákfélagið Vin með stórmót
Fimmtudagur 8. október 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »Fyrir framan annað fólk
Fimmtudagur 8. október 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »
Bráðfyndið verk, fullt af hlýju og sársauka, um fáránleika, klikkun og ást
Höfundur: Kristján Þórður Hrafnsson
Leikstjóri: Melkorka Tekla Ólafsdóttir
Leikarar: Sveinn Geirsson og Tinna Hrafnsdóttir
Maðurinn sem hún elskar fer smám saman að hegða sér mjög einkennilega. Fyrr en varir virðist þessi geðþekki maður gjörsamlega hafa misst taumhald á sjálfum sér. Og orsökin er nákvæmlega sömu eiginleikar og áður gerðu hann skemmtilegan og heillandi. Er hægt að hjálpa honum? Hvar eru mörkin? Sum vandamál virka kannski fáránleg og fyndin, en afleiðingarnar geta orðið vægast sagt rosalegar. » meira..
8. Geðorð: Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup
Fimmtudagur 8. október 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup
Í áttunda geðorðinu er velgengni í lífinu líkt við langhlaup. Því betur sem við undirbúum okkur fyrir langhlaupið því minni hætta er á að við ofkeyrum okkur. Það sama á við í lífinu, því betur sem við undirbúum okkur fyrir það sem á vegi okkar verður því betur gengur okkur. Þess vegna er mikilvægt að byggja sig upp og styrkja bæði andlega og líkamlega. » meira..
Að heyra raddir
Miðvikudagur 7. október 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »Slóð inn á vefsíðu Ron Coleman er að finna undir FRÆÐSLUEFNI hér á síðunni. Fleiri slóðir um málefnið eru væntanlegar á næstunni.
Andleg sjálfsvörn
Miðvikudagur 7. október 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »Á alþjóða geðheilbrigðisdeginum, þann 10. október, verður Sigursteinn Másson með fyrirlesturinn „Andleg sjálfsvörn“ í húnsæði Geðhjálpar, að Túngötu 7 í Reykjavík. Erindi Sigursteins hefst kl 16:00. » meira..
Myndlistasýning: Tveggja hæða vit
Miðvikudagur 7. október 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »Gígja Thoroddsen, eða GÍA, opnar myndlistarsýningu í Vin, athvarfi Rauða kross Íslands fyrir fólk með geðraskanir, miðvikudaginn 7. október kl. 13:00. Sýningin er opin til 21. okt. og er haldin í tilefni alþjóðlegs geðheilbrigðisdags sem er 10. okt. nk. Sýningin nefnist “Tveggja hæða vit” og eru allir hjartanlega velkomnir á opnunina þar sem Gía býður upp á léttar veitingar. » meira..
7. Geðorð: Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig
Miðvikudagur 7. október 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig
Fæstir hafa gaman af því að fá fólk upp á móti sér og flestir vilja hafa ánægjuleg samskipti við fólkið í kringum sig. Að vera góður í mannlegum samskiptum er góður kostur. Líklega eigum við misauðvelt með samskipti við annað fólk en það er öruggt að allir geta bætt samskipti sín við aðra. » meira..
6. Geðorð: Flæktu ekki líf þitt að óþörfu
Þriðjudagur 6. október 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »Flæktu ekki líf þitt að óþörfu
Sjötta geðorðið um að flækja ekki líf sitt að óþörfu er í hrópandi mótsögn við skilaboð auglýsinganna þar sem reynt er að sannfæra fólk um nauðsyn þess að eignast tölvu, farsíma og fleira til að geta lifað af daginn. Mikilvægt er að átta sig á því að þessir hlutir eru ekki nauðsynlegir til að okkur geti liðið vel. » meira..
Tónleikar til heiðurs Lennon
Mánudagur 5. október 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »
Föstudaginn 9. október verður kveikt á friðarsúlunni í Viðey og í tilefni af deginum mun Yoko Ono, bjóða ókeypis ferðir til Viðeyjar 9.-11. október. Tónleika til heiðurs Lennon í Listasafni Reykjavíkur verða í Hafnarhúsinu sama dag kl 22:00 » meira..
Minningar- og bænastund til eineltsforvarna í Bústaðarkirkju
Mánudagur 5. október 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »Í tilefni eins árs afmælis Liðsmanna Jerico, stuðningssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda verður haldin minningar- og bænastund til eineltsforvarna í Bústaðarkirkju þriðjudaginn 6. október kl. 20:00 – 21:30.
Við ljúkum kærleiksstundinni fyrir utan kirkjuna þar sem blöðrum verður sleppt til minningar um þá sem eineltið hefur veikt og fellt. Marglitar blöðrur og við þær getur fólk bundið orðsendingu, bænir, óskir eða þrár og sleppt þeim til himins. Miðar og pennar afhentir við innganginn.
Nánari upplýsingar á lydheilstustod.is

Hægt er að kaupa okkar vinsælu geðræktarboli með því að hafa samband við hana Ragnheiði J. Sverrisdóttur (Jonna) Verkefnastjóri í síma 896-0935 
