Fyrir framan annað fólk

Fimmtudagur 8. október 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »

AD762B2B12D1Bráðfyndið verk, fullt af hlýju og sársauka, um fáránleika, klikkun og ást

Höfundur: Kristján Þórður Hrafnsson

Leikstjóri: Melkorka Tekla Ólafsdóttir

Leikarar: Sveinn Geirsson og Tinna Hrafnsdóttir

Maðurinn sem hún elskar fer smám saman að hegða sér mjög einkennilega. Fyrr en varir virðist þessi geðþekki maður gjörsamlega hafa misst taumhald á sjálfum sér. Og orsökin er nákvæmlega sömu eiginleikar og áður gerðu hann skemmtilegan og heillandi. Er hægt að hjálpa honum? Hvar eru mörkin? Sum vandamál virka kannski fáránleg og fyndin, en afleiðingarnar geta orðið vægast sagt rosalegar. » meira..

8. Geðorð: Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup

Fimmtudagur 8. október 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »

Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup

Í áttunda geðorðinu er velgengni í lífinu líkt við langhlaup. Því betur sem við undirbúum okkur fyrir langhlaupið því minni hætta er á að við ofkeyrum okkur. Það sama á við í lífinu, því betur sem við undirbúum okkur fyrir það sem á vegi okkar verður því betur gengur okkur. Þess vegna er mikilvægt að byggja sig upp og styrkja bæði andlega og líkamlega. » meira..

Að heyra raddir

Miðvikudagur 7. október 2009 Láttu skoðun þína í ljós.. »

Slóð inn á vefsíðu Ron Coleman er að finna undir FRÆÐSLUEFNI hér á síðunni. Fleiri slóðir um málefnið eru væntanlegar á næstunni.