„Einelti á vinnustöðum, heimilum og skólum og Sjálfsvíg, forvarnir og sorg“.

Mánudagur 15. mars 2010 Láttu skoðun þína í ljós.. »

„Einelti á vinnustöðum, heimilum og skólum og Sjálfsvíg, forvarnir og sorg“. (“ Bullying in Workplace, Home and School and Suicide Prevention and Grief „). Fyrirlestrarnir eru á ensku og öllum að kostnaðarlausu.

Reykjavík Föstudagur 19. mars kl. 08.30 – 12.00 Grand Hótel Skráning á fyrirlestur í gegnum netfangið jericoreykjavik@gmail.com

 Akureyri Laugardagur 20. Mars kl. 12.00 – 15.30 Síðuskóla Skráning á fyrirlestur í gegnum netfangið jericoakureyri@gmail.com

 Reyðarfjörður Sunnudagur 21. Mars kl. 13.00 – 16.30 Safnaðarheimilinu Skráning á fyrirlestur í gegnum netfangið jericoaustfirdir@gmail.com

Til þín sem skiptir okkur Liðsmenn Jerico og ótal marga aðra svo miklu máli í baráttunni gegn einelti í þjóðfélaginu.
Samtökin eru stuðningssamtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda, stofnuð 6. október 2008.
Liðsmenn Jerico  eru frjáls félagasamtök sem starfa óháð stjórnmálaflokkum eða trúfélögum.
Markmið samtakanna er að vekja athygli á afleiðingum eineltis ásamt því að vera athvarf fyrir þolendur og aðstandendur þeirra.
Samtökin eru vettvangur ráðgjafar, vinna að fræðslu og miðla þekkingu um málefni tengd einelti.
Liðsmenn Jerico blása til leiks í meistaradeildarkeppninni gegn einelti. Keppendur í deildinni eru þjóðin sjálf.
www.lidsmennjerico.is
www.jerico.is

Náum áttum – Börn og vímuefni, viðbrögð kerfisins.

Föstudagur 12. mars 2010 Láttu skoðun þína í ljós.. »

Morgunverðarfundur: Náum áttum, næsta miðvikudag, 17. mars, kl. 8:15 til 10:00. 

Heiti fundarins er Börn og vímuefni- viðbrögð kerfisins. Skráning á vef Lýðheilsustöðvar

http://www.lydheilsustod.is/skraning

 

Fyrirlestur um félagsfælni 9. mars kl. 12:00

Mánudagur 8. mars 2010 Láttu skoðun þína í ljós.. »
Manía, í samstarfi við Náms- og starfsráðgjöf, kynnir fyrirlestur um
félagsfælni, þriðjudaginn 9. mars í Öskju, stofu 131, kl. 12:00.

Sóley D. Davíðsdóttir og Sigurbjörg J. Ludvigsdóttir, sálfræðingar
Kvíðameðferðarstöðvarinnar (KMS), munu fjalla um eðli og afleiðingar félagsfælni, sem er algengasta kvíðaröskunin, og hvernig vandi af þessum toga er meðhöndlaður hjá KMS.

Sóley Dröfn Davíðsdóttir er sérfræðingur í klínískri sálfræði og einn stofnenda Kvíðameðferðarstöðvarinnar. Sóley útskrifaðist sem sálfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2001 og starfaði við geðsvið Landspítala – háskólasjúkrahúss frá 2001 til 2007. Hún hefur sérhæft sig í meðferð við kvíðaröskunum, sérstaklega félagsfælni. Sóley starfar nú við Kvíðameðferðarstöðina og sinnir þar rannsóknum, greiningarviðtölum og
einstaklings- og hópmeðferð. Sóley lauk sérnámi í hugrænni atferlismeðferð á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands og Oxford Therapy Center árið 2008.

Sigurbjörg Jóna Ludvigsdóttir er sálfræðingur og annar stofnenda
Kvíðameðferðarstöðvarinnar. Sigurbjörg útskrifaðist sem sálfræðingur frá Háskólanum í Bergen í ársbyrjun 2003 og starfaði við geðsvið Landspítala-háskólasjúkrahúss (LSH) frá útskrift 2003 til ársins 2007. Sigurbjörg hefur lagt sérstaka áherslu á að sinna hugrænni atferlismeðferð í hópum við ýmsum vandkvæðum, s.s.: félagsfælni, ofsakvíða, þunglyndi og áfengis- og vímuefnaánetjun. Sigurbjörg starfar nú við Kvíðameðferðarstöðina og sinnir þar greiningu, einstaklings- og hópmeðferð, rannsóknum, handleiðslu og daglegum rekstri stöðvarinnar.

Hlökkum til að sjá sem flesta,
Manía, geðverndarfélag innan HÍ.