Samstarfshópurinn Náum áttum heldur morgunverðarfund miðvikudaginn 14. april 20
10 á Grand Hóteli í Reykjavík, kl. 8:15–10:00. Sjá nánar dagskrá í viðhengi
Samstarfshópurinn Náum áttum heldur morgunverðarfund miðvikudaginn 14. april 20
10 á Grand Hóteli í Reykjavík, kl. 8:15–10:00. Sjá nánar dagskrá í viðhengi
Lýðheilsustöð, í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið, stendur fyrir 2. skólaþingi stöðvarinnar 9. apríl 2010. Þingið fer fram í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6.Þingið er þátttakendum að kostnaðarlausu og boðið er upp á léttar veitingar í kaffi- og hádegishléum. En það þarf að skrá sig á þingið:
Húsrými takamarkar þátttakendafjölda og nauðsynlegt er að vita fjöldann vegna veitinga. Því er þess óskað af fólk afskrái sig geti það ekki tekið þátt með því að senda tölvupóst til: gerdurh@lydheilsustod.is
Lýðheilsustöð stóð fyrir mjög vel sóttu skólaþingi í maí 2008 og í ljósi þeirrar reynslu var ákveðið að vera reglulega með þing þar sem fjallað væri um snertifleti skólastarfs og heilsu. Margir áhugaverðir fyrirlestrar og kynningar eru á dagskrá skólaþingsins en einn erlendur fyrirlesari er á dagskrá, Nikolaus Koutakis frá Svíþjóð, sem fjallar um s.k. Örebro verkefni.
| 08:00 – 08:20 | Afhending fundargagna
|
| Fundarstjóri f.h.: Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fagsviðs, Lýðheilsustöð |
|
| 08:20 – 08:30 | Opnun ráðstefnu Kór Flensborgarskóla |
| 08:30 – 08:45 | Hvað er heilsueflandi skóli? Margrét Björnsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar |
| 08:45 – 09:30 | Reducing youth alcohol drinking through a parent-targeted intervention: the Örebro Prevention Program Nikolaus Koutakis, frá Center for Developmental Research, ÖrebroUniversity, Svíþjóð - Fyrirlestur og fyrirspurnir |
| 09:30 – 09:45 | KAFFIHLÉ
|
| 09:45 – 10:05 | Rannsóknarniðurstöður – Heilsa og líðan framhaldsskólanema
Birna Baldursdóttir, Háskólanum Reykjavík |
| 10:05 – 10:25 | Heilsueflandi framhaldsskólar Héðinn Svarfdal Björnsson, verkefnisstjóri fræðslumála, Lýðheilsustöð: Starf með framhaldsskólum og umgjörðin um Heilsueflandi framhaldsskóla |
| 10:25 – 10:45
|
Flensborg, Hafnarfirði – heilsueflandi framhaldsskóli
Magnús Þorkelsson, skólameistari Flensborg |
| 10:45 – 11:10 | Fæðuval í framhaldsskólum – hvernig er ástandið og hvar liggja helst tækifæri til breytinga? Dr. Anna Sigríður Ólafsdóttir, lektor í næringarfræði, Menntavísindasvið Háskóla Íslands |
| 11:45 – 11:00 | Handbók um mataræði í framhaldsskólum.
Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar, Lýðheilsustöð, kynnir nýja handbók um mataræði í framhaldsskólum, ætlaða Heilsueflandi framhaldsskólum |
| 11:10 – 11:30 | „Íþróttakennsla í framhaldsskólum – íþróttakennslan, menntamálaráðuneyti, skólastjórnendur, elskulegir nemendur“
Guðbrandur Stefánsson, formaður ÍKFÍ |
| 11:30 – 11:40 | Forvarnir og samstarf við foreldra framhaldsskólanema
Borghildur Jósúadóttir, formaður foreldrafélags Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi |
| 11:40 – 11:50 | ,,Rödd framhaldsskólanema”
Árný Lára Sigurðardóttir, nemandi í FVA og í stjórn nemandafélags skólans |
| 11:50 – 12:05 | Mennta- og menningarmálaráðuneyti; „Hreyfing er geðveik geðrækt“
Jóhanna María Eyjólfsdóttir, sérfræðingur hjá MMR |
| 12:05 – 12:20 | Heilbrigðisráðuneyti; „Tilbrigði við heilbrigði”
Héðinn Unnsteinsson, sérfræðingur hjá HBR |
| 12:20 – 13:00 | HÁDEGISHLÉ
|
| Fundarstjóri e.h.:
Guðni Olgeirsson, sérfræðingur hjá MMR |
|
| 13:00 – 13:20 | Rannsóknarniðurstöður Heilsa og líðan grunnskólanema 2010
Þóroddur Bjarnason, Háskólanum á Akureyri |
| 13:20 – 13:40 | Áherslur á heilsueflingu í sameiginlegri framtíðarsýn fyrir grunnskólastarf til 2020; þættir úr skýrslu Félags grunnskólakennara, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands Svandís Ingimundardóttir, skólamálafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga |
| 13:40 – 14:00 | Heilsueflandi grunnskólar; Starf með grunnskólum og umgjörðin um Heilsueflandi grunnskóla
Sveinbjörn Kristjánsson, verkefnisstjóri fræðslumála, Lýðheilsustöð |
| 14:00 – 14:15 | Heilsueflandi grunnskóli á Austurlandi Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Egilsstaðaskóla |
| 14:15 – 14:30 | Hreyfing í grunnskólastarfinu – Handbók um hreyfingu
Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar, Lýðheilsustöð, kynnir nýútkomna handbók um hreyfingu í grunnskólum |
| 14:30 – 15:00 | KAFFIHLÉ
|
| 15:00 – 15:20 | „Rödd úr skólasamfélaginu“
Óskar Einarsson, skólastjóri Fossvogsskóla |
|
15:20 – 15:35 |
Skólastjórakönnun - kynntar lokaniðurstöður úr könnun á meðal grunnskólastjóra landsins
Jórlaug Heimisdóttir, verkefnisstjóri, Lýðheilsustöð |
| 15:35 – 16:00 | Panell og fyrirspurnir - Efling tengsla á milli skólasamfélagsins og heilbrigðiskerfisins:
Geir Gunnlaugsson, landlæknir, Anna Lára Sigurðardóttir, Jóhanna María Eyjólfsdóttir, Héðinn Unnsteinsson, Jórlaug Heimisdóttir, Héðinn Björnsson og Sveinbjörn Kristjánsson. Margrét Björnsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, stýrir umræðum |
| 16:00 | Skólaþingi slitið |
Að lokinni ráðstefnu verður efni hennar, fyrirlestrar og myndir, aðgengilegt á vefsíðu Lýðheilsustöðvar

Verðlaunahafarnir saman Efri röð: André Bachmann hvunndagshetja, Jón Böðvarsson yngri, fyrir hönd afa síns Jóns Böðvarssonar sagnfræðings og kennara sem hlaut heiðursverðlaun, Sigurgeir Guðmundsson og Kristinn Ólafsson, frá Slysavarnafélag-inu Landsbjörgu. Bóas Valdórsson, Ólafur Sverrisson, séra Sigurður Grétar Sigurðsson og Ársæll Aðalbergsson, allir fyrir hönd Gauraflokksins í Vatnaskógi. Neðri röð: Svava Arnardóttir, Auður Axelsdóttir iðjuþjálfi, Bylgja Jóhannsdóttir og Hrannar Jónsson, öll frá Hugarafli. Fréttablaðið/Anton
Fjölmiðlar Samfélagsverðlauna-hátíð Fréttablaðsins var haldin í Þjóðmenningarhúsinu í gær.
fjölmiðlar Samfélagsverðlauna-hátíð Fréttablaðsins var haldin í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Á annað hundrað manns voru þar samankomin til að gleðjast með þeim rúmlega tuttugu einstaklingum og samtökum sem útnefnd voru í fjórum flokkum Samfélagsverðlaunanna.
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins eru veitt í fjórum flokkum, auk heiðursverðlauna en þau verðlaun komu í ár í hlut sagnamannsins og kennarans Jóns Böðvarssonar sem opnað hefur heim Íslendingasagna fyrir miklum fjölda samtímamanna.
Slysavarnafélagið Landsbjörg tók við Samfélagsverðlaununum úr hendi forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar. Samfélagsverðlaunin nema einni milljón króna og sagði Sigurgeir Guðmundsson, formaður Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, að verðlaunaféð kæmi sér vel nú þegar verið væri að byggja að nýju upp búnað Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar. Eins og kunnugt er skildi sveitin eftir mikinn búnað á Haítí eftir jarðskjálftana í janúar.
Hvunndagshetja ársins er gleðigjafinn André Bachmann. Verðlaunin hlýtur hann fyrir frumkvæði sitt að árlegri jólaskemmtun fyrir fatlaða, auk þess sem André smitar frá sér gleðinni hvar sem hann kemur.
Gauraflokkurinn í Vatnaskógi vann til verðlauna í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar. Gauraflokkurinn er sumarbúðatilboð fyrir drengi með ADHD. Þörfum þeirra er meðal annars mætt með fjölmennara starfsliði en ella. Aðstandendur flokksins afla sjálfir fjár vegna aukins kostnaðar þannig að foreldrar drengjanna greiða sama verð fyrir dvölina og aðrir foreldrar.
Hugarafl hlaut verðlaun í flokknum Til atlögu gegn fordómum. Þar starfa saman á jafnréttisgrunni notendur geðheilbrigðisþjónustu og fagfólk. Markmið Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins er að vekja athygli á broti af því kærleiksríka starfi sem unnið er víðs vegar í íslensku samfélagi. Allir útnefndir fengu verðlaunagripi sem voru hannaðir og smíðaðir af handhöfum Samfélagsverðlaunanna í fyrra, Ásgarði smíðaverkstæði. Aðrir vinningshafar en Samfélagsverðlaunahafarnir fengu síma í verðlaun og var hann gjöf frá Símanum.
„Einelti á vinnustöðum, heimilum og skólum og Sjálfsvíg, forvarnir og sorg“. (“ Bullying in Workplace, Home and School and Suicide Prevention and Grief „). Fyrirlestrarnir eru á ensku og öllum að kostnaðarlausu.
Reykjavík Föstudagur 19. mars kl. 08.30 – 12.00 Grand Hótel Skráning á fyrirlestur í gegnum netfangið jericoreykjavik@gmail.com
Akureyri Laugardagur 20. Mars kl. 12.00 – 15.30 Síðuskóla Skráning á fyrirlestur í gegnum netfangið jericoakureyri@gmail.com
Reyðarfjörður Sunnudagur 21. Mars kl. 13.00 – 16.30 Safnaðarheimilinu Skráning á fyrirlestur í gegnum netfangið jericoaustfirdir@gmail.com
Til þín sem skiptir okkur Liðsmenn Jerico og ótal marga aðra svo miklu máli í baráttunni gegn einelti í þjóðfélaginu.
Samtökin eru stuðningssamtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda, stofnuð 6. október 2008.
Liðsmenn Jerico eru frjáls félagasamtök sem starfa óháð stjórnmálaflokkum eða trúfélögum.
Markmið samtakanna er að vekja athygli á afleiðingum eineltis ásamt því að vera athvarf fyrir þolendur og aðstandendur þeirra.
Samtökin eru vettvangur ráðgjafar, vinna að fræðslu og miðla þekkingu um málefni tengd einelti.
Liðsmenn Jerico blása til leiks í meistaradeildarkeppninni gegn einelti. Keppendur í deildinni eru þjóðin sjálf.
www.lidsmennjerico.is
www.jerico.is
Morgunverðarfundur: Náum áttum, næsta miðvikudag, 17. mars, kl. 8:15 til 10:00.
Heiti fundarins er Börn og vímuefni- viðbrögð kerfisins. Skráning á vef Lýðheilsustöðvar
http://www.lydheilsustod.is/skraning
Sóley D. Davíðsdóttir og Sigurbjörg J. Ludvigsdóttir, sálfræðingar
Kvíðameðferðarstöðvarinnar (KMS), munu fjalla um eðli og afleiðingar félagsfælni, sem er algengasta kvíðaröskunin, og hvernig vandi af þessum toga er meðhöndlaður hjá KMS.
Sóley Dröfn Davíðsdóttir er sérfræðingur í klínískri sálfræði og einn stofnenda Kvíðameðferðarstöðvarinnar. Sóley útskrifaðist sem sálfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2001 og starfaði við geðsvið Landspítala – háskólasjúkrahúss frá 2001 til 2007. Hún hefur sérhæft sig í meðferð við kvíðaröskunum, sérstaklega félagsfælni. Sóley starfar nú við Kvíðameðferðarstöðina og sinnir þar rannsóknum, greiningarviðtölum og
einstaklings- og hópmeðferð. Sóley lauk sérnámi í hugrænni atferlismeðferð á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands og Oxford Therapy Center árið 2008.
Sigurbjörg Jóna Ludvigsdóttir er sálfræðingur og annar stofnenda
Kvíðameðferðarstöðvarinnar. Sigurbjörg útskrifaðist sem sálfræðingur frá Háskólanum í Bergen í ársbyrjun 2003 og starfaði við geðsvið Landspítala-háskólasjúkrahúss (LSH) frá útskrift 2003 til ársins 2007. Sigurbjörg hefur lagt sérstaka áherslu á að sinna hugrænni atferlismeðferð í hópum við ýmsum vandkvæðum, s.s.: félagsfælni, ofsakvíða, þunglyndi og áfengis- og vímuefnaánetjun. Sigurbjörg starfar nú við Kvíðameðferðarstöðina og sinnir þar greiningu, einstaklings- og hópmeðferð, rannsóknum, handleiðslu og daglegum rekstri stöðvarinnar.
Hlökkum til að sjá sem flesta,
Manía, geðverndarfélag innan HÍ.
Undirbúningsvinna fyrir næsta 10. okt. 2010 er þegar hafin. Við þiggjum ábendingar um efni er varðar geðheilbrigði til að setja á vefinn.
Geðræktarbolir eru áfram til sölu á kr. 1000 til styrktar verkefninu.
Hægt að senda inn pantanir t.d. á jonna@simnet.is
Morgunverðafundur verður haldin í samstarfi við VIKU 43, vímuvarnaviku 2009 á GRAND Hótel 20. október 2009 kl. 8.15 – 10.00
Yfirskriftin er Kannabis – UMFANG OG AFLEIÐINGAR
Fyrirlesarar verða;
FUNDARSTJÓRI er Rafn Jónsson » meira..
Áhugaverðir örfyrirlestrar á vef Háskóla Íslands um „Mannlíf og kreppur“. Þetta eru 10 stuttir fyrirlestrar sem hægt er að horfa á með hjálp flash spilara. Meðal fyrirlesara eru; Engilbert Sigurðsson geðlæknir, Páll Matthíasson sviðsstjóri geðsviðs LSH, Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra, Guðrún Nordal forstöðumaður stofnunar Árna Magnússonar, Jóhann Ingi sálfræðingur og Brynhildur Davíðsdóttir dósent við HÍ.
Skoða nánar á vef HÍ; www.hi.is/is/mannlif_og_kreppur