Undirbúningur fyrir 10. október
Undirbúningur fyrir alþjóðlegan geðheilbrigðisdag 10. október er nú kominn á gott skrið. Alþjóðlegt þema dagsins er „Depression: A global crisis“ eða Þunglyndi er alheimsvandamál. Áhugi var fyrir því að tengja þemað málefnum ungs fólks með geðraskanir.Ákveðið hefur verið að breyta formi dagskrárinnar á þann veg að vikan 4. til 10. október sem ber niður á miðvikudag verði helguð málefnum geðheilbrigðis. Dagskránni lýkur svo á miðvikudeginum með veglegri hátíð í Gamla Bíó/Óperunni sem standa mun frá kl 17.00 til 19.00. Að öðru leyti yrðu hefðbundin dagskráatriði, en þeim dreift á lengri tíma. Þannig er hugmyndin að hvert atriði fengi meira vægi og athygli í opinberri umræðu. Meðal hugmynda sem komið hafa fram er að fá Borgarbókasafnið til að stilla fram athyglisverðum bókum um geðheilbrigði, hafa myndlistarsýningu í eina viku í samstarfi við Hitt húsið, galleríog/eða sýnigarsal, fá Bíó Paradís til að helga vikuna kvikmyndum tengdum efninu. Gangan yrði áfram með hefðbundnum hætti frá Hlemmi eða Skólavörðuholti. Skákmótið og sjósundið yrðu einnig á sínum stað. Einnig er í deiglu að fá Landssamband Æskulýðsfélaga með í undirbúninginn til að tengja daginn við ungt fólk.
Undirbúningur hafinn
Jæja þá er undirbúningur að næstu dagskrá hafinn. Í ár eru 20 ár síðan Alþjóðleg samtök um geðheilsu, http://www.wfmh.org hrundu þessu af stað og var markmiðið þá, eins og nú, að vekja athygli á geðheilbrigðismálum með ýmsu móti. Hér á Íslandi höldum við upp á daginn í 16. sinn og í ár verður mikið um að vera eins og endranær.
Fylgist með og takið þátt
Hægt er að kaupa okkar vinsælu geðræktarboli með því að hafa samband við Hugarafl Borgartúni 22, 2. hæð Sími 414-1550