Dagskrá 10. október 2009

Öflugri og aðgengilegri geðheilbrigðisþjónusta

Haldið verður upp á daginn í göngugötunni í Mjódd og í húsakynnum Hugarafls að Álfabakka 16, laugardaginn 10. október frá kl. 13:00 – 16:30. Álfheiður Ingadóttir nýr heilbrigðisráðherra mun flytja ávarp og tónlistarmennirnir Geir Ólafs, Ingó úr Veðurguðunum og unglingahljómsveitin GÁVA taka lagið.

Við hvetjum alla til að koma í Mjóddina á laugardaginn, skemmta sér og kynnast nýjum úrræðum og/eða tala við fólk sem hefur mikla reynslu á þessu sviði.

Dagskrá

13:00 | Fjölsmiðjan flytur  ljúfa gítartóna

13:20 | Ragnheiður Jonna  Sverrisdóttir verkefnastjóri Alþjóða geðheilbrigðisdagsins opnar hátíðina.

13:30 | Heilbrigðisráðherra Álfheiður Ingadóttir flytur ávarp.

13:50 | Páll Matthíasson framkvæmdarstjóri geðsvið LSH.

14:10 | Herdís Benediktsdóttir og tveir notendur kynna bókina Geðveikar batasögur.

14:25 | Unglingahljómsveitin GÁVA

14:40 | Geir Ólafs tekur lagið

15:05 | Ingó úr Veðurguðunum tekur nokkur lög

15:20 | Bergþór Grétar Böðvarsson flytur stutt lokaávarp.

15:30 | Skákfélag Vinjar, Hrókurinn og Taflfélagið Hellir halda skákmót í tilefni dagsins.

Kynningar á yfir 20 úrræðum fyrir þá sem eru að glíma við atvinnu-, eignamissi eða annað sem getur raskað geði fólks. Boðið verður upp á veitingar , vöfflur, kaffi o.fl. á geðveikt góðu verði.  Einnig verða blöðrur fyrir börnin.

Eftirtaldir aðilar munu kynna starfsemi sína í Mjóddinni 10. október

    1. 12 spora samtökin
    2. AA samtökin
    3. AMS – Atvinna m/ stuðningi
    4. Baujan
    5. Björgin – Geðræktarfélag suðurnesja
    6. Coda
    7. Fjölsmiðjan
    8. Fjölskyldumiðstöðin
    9. Fjölskyldubrúin
    10. Geðsvið LSH og sálfræðiþjónustan
    11. Helga Pálsdóttir
    12. Herdís – Kynnir bókina Geðveikar Batasögur
    13. Rauði kross Íslands – Hjálparsími Rauða krossins 1717 og Rauða kross húsið
    14. Hlutverkasetur
    15. Hringsjá
    16. Hugarafl
    17. Iðjuþjálfun Hringbraut og Iðjuþj./vinnusalur á Kleppi
    18. Klúbburinn Geysir
    19. Konukot
    20. Kærleikssetrið
    21. Landlæknisembættið
    22. Lausnin
    23. Liðsmenn Jerico
    24. Lýðheilsustöð
    25. Manía, geðverndarfélag HÍ
    26. Rauða kross athvörfin
    27. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Búsetukjarnar viðsvegar úr bænum
    28. Þjónustumiðstöð Vesturbæjar

      Það er engin heilsa án geðheilsu, geðgóður dagur er allra dagur

      .