Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldin víðsvegar í heiminum þann 10 október ár hvert. 10okt.com er samstarfsverkefni þeirra aðila sem koma að undirbúningi Alþjóða geðheilbrigðisdagsins sem haldinn er 10 október ár hvert. Honum var fyrst hrundið af stað 1992 af Alþjóðasamtökum um geðheilsu (World Federation for Mental Health) og var markmiðið þá, eins og nú, að vekja athygli á geðheilbrigðismálum, fræða almenning um geðrækt og geðsjúkdóma og sporna gegn fordómum í garð geðsjúkra. Geðheilbrigðisdagurinn á að vera dagur allra.
Það var árið 1995 sem heilbrigðismálaráðherra, frú Ingibjörg Pálmadóttir, ákvað að þessi dagur skuli vera sérstaklega helgaður geðheilbrigðismálum. Ákvörðun ráðherra var mjög mikilvæg fyrir geðsjúka og aðstandendur þeirra til þess að vekja athygli á vanda þeirra og nauðsyn þess að úr verði bætt. Hinn 10. október 1996 var alþjóðlegur geðheilbrigðisdagur haldinn hátíðlegur á Íslandi í fyrsta sinn. Skrifstofa félagsins hélt utan um skipulagningu dagsins ásamt forstöðukonu Vinjar og bar mestan kostnað af aðgerðunum. Dagurinn varð sögulegur þar sem geðsjúkir tóku í fyrsta sinn málin í sínar eigin hendur með aðstoð samtaka sinna og komu fram opinberlega í hátíðargöngu frá heilbrigðisráðuneytinu niður Laugaveg að ráðhúsinu þar sem málþing var haldið og var mjög fjölsótt. Verndari dagsins og ræðumaður var Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, forsetafrú, sem lét þetta vera sitt fyrsta opinbera embættisverk og var það félagsmönnum mikill heiður.
Hægt er að kaupa okkar vinsælu geðræktarboli með því að hafa samband við Hugarafl Borgartúni 22, 2. hæð Sími 414-1550