
Hugarafl í samstarfi við Unghuga og Maníu stendur fyrir opnu málþingi mánudaginn 20. júní 2011 kl.16.00-18:00 í Skriðu, Háskóla Íslands við Stakkahlíð (áður Kennaraháskólinn).
Þar gefst færi á að hitta Dr. Daniel Fisher geðlækni við Riverside geðheilsumiðstöðina í Wakefield, Massachusetts.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Daniel, eða Dan eins og hann kýs að kalla sig, náði bata af geðklofa. Áður en hann varð geðlæknir lagðist hann nokkrum sinnum inn á geðsjúkrahús. Hann er einn fárra geðlækna í Bandaríkjunum sem ræðir opinberlega um hvernig honum batnaði af geðsjúkdómi sínum og er fyrirmynd fyrir aðra sem berjast við að ná sér. Hefur hann helgað líf sitt því að eyða goðsögninni um að ekki sé hægt að ná sér af geðröskunum. Bati hans og starf á þessu sviði urðu til þess að hann var valinn í nefnd Hvíta hússins um geðheilsu árið 2003.
Notendum geðheilbrigðisþjónustunnar, aðstandendum þeirra, fagfólki og áhugamönnum um geðheilbrigðismál hafa tækifæri til að spyrja Dan um sýn sína á bata, hlutverk notenda og ný viðhorf og úrræði í þessum málaflokki.
Um Daniel Fisher
Menntun og starfsferill
Daniel er með B.A. gráðu frá Princeton háskóla, lauk doktorsprófi í lífefnafræði frá Wisconsin háskóla og læknanámi frá George Washington háskóla. Hann sérhæfði sig og fékk starfsréttindi í geðlækningum við Harvard læknaskólann. Í dag er hann framkvæmdarstjóri National Empowerment Center (sjá heimasíðu miðstöðvarinnar á http://power2u.org/) og er starfandi geðlæknir við Riverside göngudeildina í Wakefield í Massachusetts.
Fyrirlesari, kennari og fræðimaður
Daniel ferðast um öll Bandaríkin og víða um heim til þess að halda námskeið og fyrirlestra, kenna og skipuleggja ráðstefnur fyrir notendur geðheilbrigðiskerfisins, þá sem hafa náð bata, aðstandendur og fagaðila í geðheilbrigðisgeiranum. Markmið hans er að tala fyrir bata með notkun valdeflingaraðferða fyrir fólk sem hefur verið stimplað með geðraskanir. Hann hefur komið fram í ótal útvarps- og sjónvarpsþáttum, þ.á.m. CNN Special Report. Að auki er hann fræðimaður sem hefur rannsakað taugaboðefni við bandarísku geðheilbrigðisstofnunina (National Institute of Mental Health) og hvernig fólki batnar af geðsjúkdómum. Með Laurie Ahern þróaði hann Valdeflingarlíkanið og PACE batamódelið (Personal Assistance in Community Existence) sem gengur út á persónulegan stuðning úti í samfélaginu. Hann hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir starf sitt, t.a.m. verðlaun Clifford Beers geðheilbrigðissamtakanna og Bazelon miðstövar um lagaráðgjöf.
Höfundur
Dan hefur skrifað fjölda greina í fagtímaritum, svo sem „Hospital and Community Psychiatry“ og „Psychosocial Rehabilitation Journal“ og kafla í ýmsum bókum. Hann hefur auk þess gert mynd um mikilvæga þætti í bata, „Notendur sem þjónustuaðilar“ og bækling, „Bati er fyrir alla“, um sama efni.
Hægt er að kaupa okkar vinsælu geðræktarboli með því að hafa samband við Hugarafl Borgartúni 22, 2. hæð Sími 414-1550