félagsfælni, þriðjudaginn 9. mars í Öskju, stofu 131, kl. 12:00.
Sóley D. Davíðsdóttir og Sigurbjörg J. Ludvigsdóttir, sálfræðingar
Kvíðameðferðarstöðvarinnar (KMS), munu fjalla um eðli og afleiðingar félagsfælni, sem er algengasta kvíðaröskunin, og hvernig vandi af þessum toga er meðhöndlaður hjá KMS.
Sóley Dröfn Davíðsdóttir er sérfræðingur í klínískri sálfræði og einn stofnenda Kvíðameðferðarstöðvarinnar. Sóley útskrifaðist sem sálfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2001 og starfaði við geðsvið Landspítala – háskólasjúkrahúss frá 2001 til 2007. Hún hefur sérhæft sig í meðferð við kvíðaröskunum, sérstaklega félagsfælni. Sóley starfar nú við Kvíðameðferðarstöðina og sinnir þar rannsóknum, greiningarviðtölum og
einstaklings- og hópmeðferð. Sóley lauk sérnámi í hugrænni atferlismeðferð á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands og Oxford Therapy Center árið 2008.
Sigurbjörg Jóna Ludvigsdóttir er sálfræðingur og annar stofnenda
Kvíðameðferðarstöðvarinnar. Sigurbjörg útskrifaðist sem sálfræðingur frá Háskólanum í Bergen í ársbyrjun 2003 og starfaði við geðsvið Landspítala-háskólasjúkrahúss (LSH) frá útskrift 2003 til ársins 2007. Sigurbjörg hefur lagt sérstaka áherslu á að sinna hugrænni atferlismeðferð í hópum við ýmsum vandkvæðum, s.s.: félagsfælni, ofsakvíða, þunglyndi og áfengis- og vímuefnaánetjun. Sigurbjörg starfar nú við Kvíðameðferðarstöðina og sinnir þar greiningu, einstaklings- og hópmeðferð, rannsóknum, handleiðslu og daglegum rekstri stöðvarinnar.
Hlökkum til að sjá sem flesta,
Manía, geðverndarfélag innan HÍ.
Hægt er að kaupa okkar vinsælu geðræktarboli með því að hafa samband við hana Ragnheiði J. Sverrisdóttur (Jonna) Verkefnastjóri í síma 896-0935 
