Hafa íslendingar fordóma gagnvart geðrænum vandamálum?

Þriðjudagur 13. október 2009 Láttu skoðun þína í ljós »

Niðurstöður birtar úr einni stærstu alþjóðlegu rannsókn sem gerð hefur verið á þessu sviði.

Tökum öll þátt í umræðum um framtíðarsýn og stefnumótun!!

Þann 3.nóvember 2009 er fyrirhuguð ráðstefna sem mun fjalla um fordóma gagnvart einstaklingum með geðræn vandamál frá sjónarhorni félagsfræði, geðlæknisfræði og notenda. Megintilgangur ráðstefnunnar er að kynna niðurstöður úr nýlegri könnun á viðhorfum Íslendinga til geðrænna vandamála en að rannsókninni standa þau Sigrún Ólafsdóttir, lektor í félagsfræði við Boston University og Jón Gunnar Bernburg, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Hugarafl, Geðlæknafélag Íslands, Félags- og Mannvísindadeild Háskóla Íslands og Félagsfræðingafélag Íslands.

Viðhorfskönnunin er hluti af alþjóðlegri rannsókn sem framkvæmd var í 15 þjóðlöndum. Könnunin var lögð fyrir árið 2006-2007, en farið var í heimsókn til rúmlega 1.000 íslendinga. Í rannsókninni er spurt um viðhorf svarenda til eðli og orsaka geðrænna vandamála, fordóma gangvart geðrænum vandamálum, notkun á heilbrigðisþjónustu, og um ábyrgð ríkisvaldsins á því að bregðast við geðrænum vandamálum.

Á ráðstefnunni verður fjallað um helstu niðurstöður fyrir Ísland, þar sem metið verður umfang og eðli fordóma gagnvart einstaklingum með geðræn vandamál. Jafnframt munum við setja niðurstöðurnar fyrir Ísland í alþjóðlegt samhengi með því að bera þær saman við niðurstöður frá hinum 14 löndunum.

Að lokinni kynningu niðurstaðnanna munu aðilar sem koma að geðheilbrigðismálum á Íslandi tjá sig um niðurstöðurnar og um fordóma á Íslandi. Ráðgert er að fram fari umræða þar sem að fræðimenn, notendur, heilbrigðisstarfsmenn og stefnumótendur munu fjalla um hvað niðurstöðurnar þýða fyrir íslenskt samfélag og þá sem eiga við geðræn vandamál að stríða. Þar verður sérstakri athygli beint að starfi Hugarafls geng fordómum, en þau samtök hafa markvisst unnið að því að auka þekkingu almennings og ráðamanna m.a. með fræðslu, greinaskrifum, og þátttöku í stefnumótun.

Ráðstefnan verður haldin í Hátíðarsal Háskóla Íslands milli klukkan 13 og 16 og þar verður einnig hægt að nálgast skýrslu um niðurstöðurnar.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis!

Yfirskrift hátíðarinnar í ár: Öflugri og aðgengilegri geðheilbrigðisþjónusta

2 comments

  1. Eygló Valdimarsdóttir segir:

    Er möguleiki á að fá afrit af skýrslunni þó svo ég sjái mér ekki fært að mæta?

  2. admin segir:

    Sæl Eygló

    Spurning hvort þú gætir sett þig í samband við höfunda skýrslunnar. Nánari upplýsingar um viðkomandi er að finna á eftirfarandi vef:
    http://www.rikivatnajokuls.is/frettir/2009/01/06/nr/6047

    Annars teldi ég líklegt að hægt væri að nálgast skýrsluna hjá þeim sem standa að ráðstefnunni.

Færðu inn athugasemd