Takk fyrir 10. október 2009

Sunnudagur 11. október 2009 Láttu skoðun þína í ljós »

Geðgóður dagurin í Mjóddinni í gær 10. október tókst frábærlega vel. Mikið fjölmenni og var dagurinn hinn skemmtilegasti. Við viljum þakka öllum sem heimsóttu okkur í Mjóddina. Þökkum heilbrigðisráðherra, Álfheiði Ingadóttur fyrir sitt ávarp og Páli Matthíassyni geðlækni fyrir frábært erindi. Einnig þökkum við þeim Herdísi Benediktsdóttur, Marteini og Þóreyju fyrir góða kynningu á bókinni Geðveikar batasögur og þeim sem kynntu atriðin. Þökkum frábæru tónlistarfólki, Þorsteini gítarleikaranum góða frá Fjölsmiðjunni, frábærri unglingahljómsveit sem kalla sig GÁVA, Geir Ólafs sem sló í gegn eins og honum einum er lagið og Ingó úr Veðurguðunum, en hann var alveg frábær eins og alltaf. Takk og aftur takk fyrir ykkar vinnu sem öll var gefin.
Síðast en ekki síst vil ég þakka öllu hinu frábæra fólki sem vann bæði að undirbúningi og svo á daginn sjálfan að ógleymdum húsverðinum í Mjódd sem var með okkur allan tímann.

Fyrir hönd stjórnar,

Ragnheiður Jonna Sverrisdóttir verkefnastjóri

Yfirskrift hátíðarinnar í ár: Öflugri og aðgengilegri geðheilbrigðisþjónusta

Færðu inn athugasemd