Bráðfyndið verk, fullt af hlýju og sársauka, um fáránleika, klikkun og ást
Höfundur: Kristján Þórður Hrafnsson
Leikstjóri: Melkorka Tekla Ólafsdóttir
Leikarar: Sveinn Geirsson og Tinna Hrafnsdóttir
Maðurinn sem hún elskar fer smám saman að hegða sér mjög einkennilega. Fyrr en varir virðist þessi geðþekki maður gjörsamlega hafa misst taumhald á sjálfum sér. Og orsökin er nákvæmlega sömu eiginleikar og áður gerðu hann skemmtilegan og heillandi. Er hægt að hjálpa honum? Hvar eru mörkin? Sum vandamál virka kannski fáránleg og fyndin, en afleiðingarnar geta orðið vægast sagt rosalegar.
Í víðara samhengi fjallar leikritið um stjórnleysi í sálarlífinu, þegar áráttur, fíknir eða langanir taka að stjórna lífi fólks.
Fyrir framan annað fólk er með síðu á facebook
Nánari upplýsingar um leikritið er að finna á vefsíðu Hafnarfjarðarleikhúsins og midi.is
Hægt er að kaupa okkar vinsælu geðræktarboli með því að hafa samband við Hugarafl Borgartúni 22, 2. hæð Sími 414-1550