Ungt fólk og sorg
Unglingum og ungu fólki reynist oft erfitt að takast á við þung áföll eins og ótímabær dauðsföll í sínu nánasta umhverfi. Þessi aldurshópur hefur tilhneigingu til að birgja tilfinningar og á erfitt með að tjá sorg sína, um leið og hann er að leita að sjálfsmynd og losa tengsl við upprunafjölskyldu sína.
Wilhelm Norðfjörð sálfræðingur fjallar um Ungt fólk og sorg á fræðslukvöldi hjá Nýrri dögun, samtökum um sorg og sorgarviðbrögð, n.k. fimmtudagskvöld 2. febrúar. Fyrirlesturinn er í safnaðarheimili Háteigskirkju og hefst kl. 20:30. Hann er öllum opinn.
Á undan eða kl. 19:00 verður opið hús í safnaðarheimilinu. Þangað getur fólk komið og fengið sér kaffi og rætt saman.
Wilhelm Norðfjörð sálffræðingur hefur áratuga reynslu af því að vinna með einstaklingum, fjölskyldum og skólum varðandi stuðning og meðferð fyrir unglinga og ungt fólk. Þá hefur hann unnið mikið í tengslum við sjálfsvíg og forvarnir varðandi sjálfsvíg.
Hægt er að kaupa okkar vinsælu geðræktarboli með því að hafa samband við Hugarafl Borgartúni 22, 2. hæð Sími 414-1550