Að læknast af geðröskun – Málþing
Hugarafl í samstarfi við Háskólann í Reykjavík stendur fyrir opnu málþingi laugardaginn 15. maí 2010 kl.13.00-16:00 í Bellatrix salnum í húsnæði skólans í Nauthólsvík.
Frummælandi á málþinginu verður Dr. Daniel Fisher geðlæknir við Riverside geðheilsumiðstöðina í Wakefield, Massachusetts. Erindið verður flutt á ensku en samhliða verður reynt að varpa upp á íslensku helstu atriðum þess.
Daniel, eða Dan eins og hann kýs að kalla sig, náði bata af geðklofa. Áður en hann varð geðlæknir lagðist hann nokkrum sinnum inn á geðsjúkrahús. Hann er einn fárra geðlækna í Bandaríkjunum sem ræðir opinberlega um hvernig honum batnaði af geðsjúkdómi sínum og er fyrirmynd fyrir aðra sem berjast við að ná sér. Hefur hann helgað líf sitt því að eyða goðsögninni um að ekki sé hægt að ná sér af geðröskunum. Bati hans og starf á þessu sviði urðu til þess að hann var valinn í nefnd Hvíta hússins um geðheilsu.
Dagskrá málþingsins:
13:00-13:15 Auður Axelsdóttir, forstöðumaður Geðheilsa-eftirfylgd og Hugaraflsfélagi: ”Aldrei að segja aldrei”
13:15-13:30 Dr. Steindór J. Erlingsson vísindasagnfræðingur og Hugaraflsfélagi:
”Eiga geðlæknisfræði og trúarbrögð eitthvað sameiginlegt?”
13:30-14:30 Dr. Daniel Fisher geðlæknir:
“The importance of consumer/users gaining their voice locally and nationally to recover their life“ (“Mikilvægi þess fyrir bata notenda að rödd þeirra heyrist í nærumhverfinu og á landsvísu”)
14:30-14.45 Kaffihlé
14:45-16:00 Fyrirspurnir
Fundarstjóri: Hrannar Jónsson Hugarafli
Aðgangur að málþinginu er ókeypis og öllum opinn en þátttakendur eru beðnir um að tilkynna þátttöku sína til hugarafl@hugarafl.is.
Um Daniel Fisher
Menntun og starfsferill
Daniel er með B.A. gráðu frá Princeton háskóla, lauk doktorsprófi í lífefnafræði frá Wisconsin háskóla og læknanámi frá George Washington háskóla. Hann sérhæfði sig og fékk starfsréttindi í geðlækningum við Harvard læknaskólann. Í dag er hann framkvæmdarstjóri National Empowerment Center (sjá heimasíðu miðstöðvarinnar á http://power2u.org) og er starfandi geðlæknir við Riverside göngudeildina í Wakefield í Massachusetts.
Fyrirlesari, kennari og fræðimaður
Daniel ferðast um öll Bandaríkin og víða um heim til þess að halda námskeið og fyrirlestra, kenna og skipuleggja ráðstefnur fyrir notendur geðheilbrigðiskerfisins, þá sem hafa náð bata, aðstandendur og fagaðila í geðheilbrigðisgeiranum. Markmið hans er að tala fyrir bata með notkun valdeflingaraðferða fyrir fólk sem hefur verið stimplað með geðraskanir. Hann hefur komið fram í ótal útvarps- og sjónvarpsþáttum, þ.á.m. CNN Special Report. Að auki er hann fræðimaður sem hefur rannsakað taugaboðefni við bandarísku geðheilbrigðisstofnunina (National Institute of Mental Health) og hvernig fólki batnar af geðsjúkdómum. Með Laurie Ahern þróaði hann Valdeflingarlíkanið og PACE batamódelið (Personal Assistance in Community Existence) sem gengur út á persónulegan stuðning úti í samfélaginu. Hann hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir starf sitt, t.a.m. verðlaun Clifford Beers geðheilbrigðissamtakanna og Bazelon miðstövar um lagaráðgjöf.
Höfundur
Dan hefur skrifað fjölda greina í fagtímaritum, svo sem „Hospital and Community Psychiatry“ og „Psychosocial Rehabilitation Journal“ og kafla í ýmsum bókum. Hann hefur auk þess gert mynd um mikilvæga þætti í bata, „Notendur sem þjónustuaðilar“ og bækling, „Bati er fyrir alla“, um sama efni.