Lýðheilsustöð, í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið, stendur fyrir 2. skólaþingi stöðvarinnar 9. apríl 2010. Þingið fer fram í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6.
Þingið er þátttakendum að kostnaðarlausu og boðið er upp á léttar veitingar í kaffi- og hádegishléum. En það þarf að skrá sig á þingið:
Húsrými takamarkar þátttakendafjölda og nauðsynlegt er að vita fjöldann vegna veitinga. Því er þess óskað af fólk afskrái sig geti það ekki tekið þátt með því að senda tölvupóst til: gerdurh@lydheilsustod.is
Lýðheilsustöð stóð fyrir mjög vel sóttu skólaþingi í maí 2008 og í ljósi þeirrar reynslu var ákveðið að vera reglulega með þing þar sem fjallað væri um snertifleti skólastarfs og heilsu. Margir áhugaverðir fyrirlestrar og kynningar eru á dagskrá skólaþingsins en einn erlendur fyrirlesari er á dagskrá, Nikolaus Koutakis frá Svíþjóð, sem fjallar um s.k. Örebro verkefni.
Dagskrá
| 08:00 – 08:20 | Afhending fundargagna
|
| Fundarstjóri f.h.: Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri fagsviðs, Lýðheilsustöð |
|
| 08:20 – 08:30 | Opnun ráðstefnu Kór Flensborgarskóla |
| 08:30 – 08:45 | Hvað er heilsueflandi skóli? Margrét Björnsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar |
| 08:45 – 09:30 | Reducing youth alcohol drinking through a parent-targeted intervention: the Örebro Prevention Program Nikolaus Koutakis, frá Center for Developmental Research, ÖrebroUniversity, Svíþjóð - Fyrirlestur og fyrirspurnir |
| 09:30 – 09:45 | KAFFIHLÉ
|
| 09:45 – 10:05 | Rannsóknarniðurstöður – Heilsa og líðan framhaldsskólanema
Birna Baldursdóttir, Háskólanum Reykjavík |
| 10:05 – 10:25 | Heilsueflandi framhaldsskólar Héðinn Svarfdal Björnsson, verkefnisstjóri fræðslumála, Lýðheilsustöð: Starf með framhaldsskólum og umgjörðin um Heilsueflandi framhaldsskóla |
| 10:25 – 10:45
|
Flensborg, Hafnarfirði – heilsueflandi framhaldsskóli
Magnús Þorkelsson, skólameistari Flensborg |
| 10:45 – 11:10 | Fæðuval í framhaldsskólum – hvernig er ástandið og hvar liggja helst tækifæri til breytinga? Dr. Anna Sigríður Ólafsdóttir, lektor í næringarfræði, Menntavísindasvið Háskóla Íslands |
| 11:45 – 11:00 | Handbók um mataræði í framhaldsskólum.
Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar, Lýðheilsustöð, kynnir nýja handbók um mataræði í framhaldsskólum, ætlaða Heilsueflandi framhaldsskólum |
| 11:10 – 11:30 | „Íþróttakennsla í framhaldsskólum – íþróttakennslan, menntamálaráðuneyti, skólastjórnendur, elskulegir nemendur“
Guðbrandur Stefánsson, formaður ÍKFÍ |
| 11:30 – 11:40 | Forvarnir og samstarf við foreldra framhaldsskólanema
Borghildur Jósúadóttir, formaður foreldrafélags Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi |
| 11:40 – 11:50 | ,,Rödd framhaldsskólanema”
Árný Lára Sigurðardóttir, nemandi í FVA og í stjórn nemandafélags skólans |
| 11:50 – 12:05 | Mennta- og menningarmálaráðuneyti; „Hreyfing er geðveik geðrækt“
Jóhanna María Eyjólfsdóttir, sérfræðingur hjá MMR |
| 12:05 – 12:20 | Heilbrigðisráðuneyti; „Tilbrigði við heilbrigði”
Héðinn Unnsteinsson, sérfræðingur hjá HBR |
| 12:20 – 13:00 | HÁDEGISHLÉ
|
| Fundarstjóri e.h.:
Guðni Olgeirsson, sérfræðingur hjá MMR |
|
| 13:00 – 13:20 | Rannsóknarniðurstöður Heilsa og líðan grunnskólanema 2010
Þóroddur Bjarnason, Háskólanum á Akureyri |
| 13:20 – 13:40 | Áherslur á heilsueflingu í sameiginlegri framtíðarsýn fyrir grunnskólastarf til 2020; þættir úr skýrslu Félags grunnskólakennara, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands Svandís Ingimundardóttir, skólamálafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga |
| 13:40 – 14:00 | Heilsueflandi grunnskólar; Starf með grunnskólum og umgjörðin um Heilsueflandi grunnskóla
Sveinbjörn Kristjánsson, verkefnisstjóri fræðslumála, Lýðheilsustöð |
| 14:00 – 14:15 | Heilsueflandi grunnskóli á Austurlandi Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Egilsstaðaskóla |
| 14:15 – 14:30 | Hreyfing í grunnskólastarfinu – Handbók um hreyfingu
Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar, Lýðheilsustöð, kynnir nýútkomna handbók um hreyfingu í grunnskólum |
| 14:30 – 15:00 | KAFFIHLÉ
|
| 15:00 – 15:20 | „Rödd úr skólasamfélaginu“
Óskar Einarsson, skólastjóri Fossvogsskóla |
|
15:20 – 15:35 |
Skólastjórakönnun - kynntar lokaniðurstöður úr könnun á meðal grunnskólastjóra landsins
Jórlaug Heimisdóttir, verkefnisstjóri, Lýðheilsustöð |
| 15:35 – 16:00 | Panell og fyrirspurnir - Efling tengsla á milli skólasamfélagsins og heilbrigðiskerfisins:
Geir Gunnlaugsson, landlæknir, Anna Lára Sigurðardóttir, Jóhanna María Eyjólfsdóttir, Héðinn Unnsteinsson, Jórlaug Heimisdóttir, Héðinn Björnsson og Sveinbjörn Kristjánsson. Margrét Björnsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, stýrir umræðum |
| 16:00 | Skólaþingi slitið |
Að lokinni ráðstefnu verður efni hennar, fyrirlestrar og myndir, aðgengilegt á vefsíðu Lýðheilsustöðvar



Hægt er að kaupa okkar vinsælu geðræktarboli með því að hafa samband við hana Ragnheiði J. Sverrisdóttur (Jonna) Verkefnastjóri í síma 896-0935 
