Archive for október, 2009

Kannabis – UMFANG OG AFLEIÐINGAR

Fimmtudagur 15. október 2009

Morgunverðafundur verður haldin í samstarfi við VIKU 43, vímuvarnaviku 2009 á GRAND Hótel 20. október 2009 kl. 8.15 – 10.00

Yfirskriftin er Kannabis – UMFANG OG AFLEIÐINGAR

Fyrirlesarar verða;

  • Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn;
    • Umfang framleiðslu og dreifing á kannabis
  • Arngrímur Þór Gunnarsson, forvarnafulltrúi í Fjölbraut Ármúla
    • Kannabis í framhaldsskólanum, umfang og viðbrögð
  • Aðstandandi kannabisneytanda
    • Einkenni, viðbrögð og afleiðingar
  • Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi
    • Líkamleg áhrif og afleiðingar fyrir neytandann

FUNDARSTJÓRI er Rafn Jónsson » meira af: Kannabis – UMFANG OG AFLEIÐINGAR

Mannlíf og kreppa

Miðvikudagur 14. október 2009

Áhugaverðir  örfyrirlestrar á vef Háskóla Íslands um „Mannlíf og kreppur“. Þetta eru 10 stuttir fyrirlestrar sem hægt er að horfa á með hjálp flash spilara. Meðal fyrirlesara eru; Engilbert Sigurðsson geðlæknir, Páll Matthíasson sviðsstjóri geðsviðs LSH, Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra, Guðrún Nordal forstöðumaður stofnunar Árna Magnússonar, Jóhann Ingi sálfræðingur og Brynhildur Davíðsdóttir dósent við HÍ.

Skoða nánar á vef HÍ; www.hi.is/is/mannlif_og_kreppur

Norræn ráðstefna: Welfare in Times of Crises

Þriðjudagur 13. október 2009

Norræn rástefna: Welfare in Times of Crises, verður haldin á  Hótel Sögu, 21. október frá klukkan kl. 9:00 til 16:15.

Á ráðstefnunni verður að finna fjölda áhugaverðra fyrirlestra, s.s um áhrif efnahagsþrenginga á heilsu og líðan, áhrif alþjóðagjaldeyrissjóðsins á heilbrigðiskerfi þeirra landa sem þeir aðstoða, reynslu Norðurlandaþjóðanna, kynntar verðar niðurstöður íslenskra rannsókna ásamt úrræðum sem unnið er að í íslensku samfélagi. Einnig er gert ráð fyrir umræðu með þátttakendum um hvers konar samfélag við viljum búa í.

Ráðstefnan fer fram á ensku og er öllum opin án endurgjalds.

Skráning fer fram á  lydheilsustod.is

Sækja auglýsingu á PDF 2.2mb

Hafa íslendingar fordóma gagnvart geðrænum vandamálum?

Þriðjudagur 13. október 2009

Niðurstöður birtar úr einni stærstu alþjóðlegu rannsókn sem gerð hefur verið á þessu sviði.

Tökum öll þátt í umræðum um framtíðarsýn og stefnumótun!!

Þann 3.nóvember 2009 er fyrirhuguð ráðstefna sem mun fjalla um fordóma gagnvart einstaklingum með geðræn vandamál frá sjónarhorni félagsfræði, geðlæknisfræði og notenda. Megintilgangur ráðstefnunnar er að kynna niðurstöður úr nýlegri könnun á viðhorfum Íslendinga til geðrænna vandamála en að rannsókninni standa þau Sigrún Ólafsdóttir, lektor í félagsfræði við Boston University og Jón Gunnar Bernburg, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Hugarafl, Geðlæknafélag Íslands, Félags- og Mannvísindadeild Háskóla Íslands og Félagsfræðingafélag Íslands. » meira af: Hafa íslendingar fordóma gagnvart geðrænum vandamálum?

Töframáttur tónlistar

Þriðjudagur 13. október 2009

Nú fer í hönd fjórði starfsvetur Töframáttar tónlistar. Líkt og síðastliðinn vetur verða tónleikarnir haldnir á Kjarvalsstöðum og hefjast  kl. 14:00 á mánudögum.

Fyrstu tónleikar vetrarins verða mánudaginn 19. október en þá munu þau Gunnar Kvaran sellóleikari og Elísabet Waage hörpuleikari flytja tónleikadagskrá. Tónleikar vetrarins verða fernir í allt 19. október, 30. nóvember, 22. mars og 26. apríl.

Töframáttur tónlistar er heiti á tónleikaröð sem Gunnar Kvaran kom á fót árið 2006 svo þeim sem minna mega sín í þjóðfélaginu gefist tækifæri til að hlusta á vandaða tónlist í fyrsta flokks flutningi – endurgjaldslaust.

Vonandi sjáumst við sem flest og njótum stundarinnar.

Takk fyrir 10. október 2009

Sunnudagur 11. október 2009

Geðgóður dagurin í Mjóddinni í gær 10. október tókst frábærlega vel. Mikið fjölmenni og var dagurinn hinn skemmtilegasti. Við viljum þakka öllum sem heimsóttu okkur í Mjóddina. Þökkum heilbrigðisráðherra, Álfheiði Ingadóttur fyrir sitt ávarp og Páli Matthíassyni geðlækni fyrir frábært erindi. Einnig þökkum við þeim Herdísi Benediktsdóttur, Marteini og Þóreyju fyrir góða kynningu á bókinni Geðveikar batasögur og þeim sem kynntu atriðin. Þökkum frábæru tónlistarfólki, Þorsteini gítarleikaranum góða frá Fjölsmiðjunni, frábærri unglingahljómsveit sem kalla sig GÁVA, Geir Ólafs sem sló í gegn eins og honum einum er lagið og Ingó úr Veðurguðunum, en hann var alveg frábær eins og alltaf. Takk og aftur takk fyrir ykkar vinnu sem öll var gefin.
Síðast en ekki síst vil ég þakka öllu hinu frábæra fólki sem vann bæði að undirbúningi og svo á daginn sjálfan að ógleymdum húsverðinum í Mjódd sem var með okkur allan tímann.

Fyrir hönd stjórnar,

Ragnheiður Jonna Sverrisdóttir verkefnastjóri

Eflum líkamsmynd barna og unglinga

Sunnudagur 11. október 2009

Tvær greinar eftir Sigrúnu Daníelsdóttur sálfræðing um líkamsmynd barna og unglinga hefur verið bætt undir tenglinum Fræðsluefni. Greinarnar eru á PDF formi.

Þeim sem langar til að kynnast Sigrúnu betur geta kíkt á skemmtilega bloggsíðu sem hún heldur úti; blog.eyjan.is/likamsvirding

Eflum líkamsmynd barna og unglinga – Tíu ráð til að auka líkamsvirðingu barna. | Sækja PDF 52kb
Hvað er líkamsvirðing ? | Sækja PDF 100kb

10. Geðorð: Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast

Laugardagur 10. október 2009

Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast

Eitt af því sem einkennir hamingjusamt fólk er að það telur sig hafa náð markmiðum í lífinu sem skipta máli. Þeir sem setja sér markmið og stefna að þeim ná yfirleitt lengra en hinir sem ekki hafa ákveðna stefnu. Að ná settu markmiði getur verið mjög ánægjulegt, styrkjandi og hvetjandi til að halda áfram. » meira af: 10. Geðorð: Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast

Ljósmyndir frá undirbúningi 10. október 2009

Föstudagur 9. október 2009

Á meðan undirbúningi 10. október ‘09 stendur sem hæst, langar okkur til að deila með ykkur ljósmyndum af þeim sem hafa gefið vinnuna sína í tilefni af deginum á morgun. Þetta er sterkur hópur með breiða þekkingu sem kemur frá öllum áttum samfélagsins. Gangi ykkur öllum vel í kvöld og megi dagurinn á morgun vera ánægjulegur fyrir alla.

Myndirnar eru teknar í húsakynnum Hugarafls í Mjóddinni. » meira af: Ljósmyndir frá undirbúningi 10. október 2009

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn á Rás 1

Föstudagur 9. október 2009

Í þættinum Samfélag í nærmynd á Rás 1 var tekið viðtal við Ragnheiði Jonnu Sverrisdóttur verkefnastjóra Alþjóða geðheilbrigðsdags 2009 og Herdísi Benediktsdóttur sem gaf út bókina Geðveikar batasögur. Skemmtilegt og áhugavert viðtal sem vert er að hlusta á.

Upptökur af þættinum er hægt að nálgast á heimasíðu ruv.is