Archive for september, 2009

Forvarnadagurinn er í dag

Miðvikudagur 30. september 2009

forvarnadagurForvarnardagur 2009 er haldinn í öllum grunnskólum landsins í dag. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu.

Forvarnardagurinn er haldin að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
Verkefnið er stutt af lyfjafyrirtækinu Actavis.

  • Rannsóknir hafa leitt í ljós að unglingar foreldra sem vita gjarnan hvar þeir eru á kvöldin og með hverjum, eru ólíklegri til að neyta fíkniefna en þeir unglingar sem eru undir minna eftirliti.
  • Því meiri tíma sem foreldrar verja með unglingum því ólíklegra er að þeir leiðist út í fíkniefnaneyslu.
  • Þeir unglingar sem telja sig auðveldlega geta fengið stuðning frá foreldrum sínum eru ólíklegri en aðrir til að leiðast inn á braut fíkniefnaneyslu.
  • Foreldrar sem þekkja aðra foreldra í hverfinu og vini barna sinna draga úr líkum á því að unglingar ánetjist fíkniefnum. Það þarf heilt þorp til að ala upp eitt barn.
  • Samstarf foreldra, þar með talið þátttaka í skólastarfi, æskulýðs- og íþróttastarfi og foreldrarölt, er mjög af hinu góða. Þekktu foreldra skólafélaga og vina unglinga þinna og vertu hluti af samfélagi og neti foreldra. Láttu þig varða hag unglinga almennt.
  • Unglingar sem stunda skipulagt íþrótta-og æskulýðsstarf undir leiðsögn ábyrgra aðila eru ólíklegri til að leiðast út í fíkniefnaneyslu eða aðra óæskilega hegðun.
  • Því lengur sem unglingar sniðganga áfengi því ólíklegra er að þeir ánetjist fíkniefnum. Hvert ár skiptir á máli.
  • Öflugt forvarnarstarf þarf að beinast að því að bæta umhverfi unglinga. Miklu skiptir að allir vinni saman; foreldrar, kennarar og þeir sem skipuleggja íþrótta- og æskulýðsstarf. Allir þessir aðilar verða að leggjast á eitt eigi góður árangur að nást. Forvarnarstarf er grasrótarstarf.

Nánari upplýsingar um hvernig þú getur tekið þátt er að finna á vefsíðu forvarnadagur.is

Geðspeki | vefur um geðheilbrigði og geðrækt

Þriðjudagur 29. september 2009

Þann 22. febrúar 2009 var opnaður Geðspekivefur, vefur um geðheilbrigði og geðrækt.

Markmið Geðspekivefsins er að skapa jákvæða umræðu um geðheilsu og vekja athygli á hárri tíðni álagsþátta meðal háskólanema. Vefnum er ætlað að dýpka þekkingu á geðheilbrigði, geðröskunum, áhættuþáttum og meðferðarúrræðum og stuðla þannig að geðheilbrigði.

Slóð vefsins er ged.hi.is

Kynna starfsemi sína í Mjóddinni

Mánudagur 28. september 2009

Nú styttist óðum í að nákvæm tímasetning á dagskrá 10. október 2009 verði tibúin en á meðan langar okkur til að kynna þá 19 aðila sem ætla að vera með kynningu í Mjóddinni. Þetta er fjölbreyttur hópur og þeir sem vilja skrá sig hafi samband við Bergþór G. B. með því að hringja í 543-4081 eða senda póst, með upplýsingum um nafn og símanúmer, á netfangið bergbo@landspitali.is

Eftirtaldir aðilar munu kynna starfsemi sína í Mjóddinni 10. október

  1. Björgin www.bjorgin.is
  2. Fjölsmiðjan www.fjolsmidjan.is
  3. Fjölskyldumiðstöðin Háaleitisbraut 13
  4. Geðsvið LSH – Bergþór fulltrúi notenda, Páll Matt framkvæmdarstjóri geðsviðs, Fjölskyldubrúin og Sálfræðiþjónusta geðsviðs.  www.lsh.is
  5. Helga Pálsdóttir (Sölubás)
  6. Hjálparsími Rauða krossins 1717 og Rauða kross húsið www.redcross.is
  7. Hlutverkasetur www.hlutverkasetur.is
  8. Hringsjá, (nemar og fl.) www.hringsja.is
  9. Hugarafl www.hugarafl.is
  10. Iðjuþjálfun Hringbraut + Iðjuþj./vinnusalur á Kleppi
  11. KlúbburinnGeysir www.kgeysir.is
  12. Landlæknisembættið www.landlaeknir.is
  13. Lausnin og 12 spora samtök saman á borði www.lausnin.is
  14. Liðsmenn Jerico www.jerico.is
  15. Lýðheilsustöð www.lydheilsustod.is
  16. Manía, geðverndarfélag HÍ www.mania.is
  17. Rauða kross athvörfin (Dvöl, Lækur, Vin) www.redcross.is
  18. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Búsetukjarnar viðsvegar úr bænum www.rvk.is
  19. Þjónustumiðstöð Vesturbæjar www.rvk.is

Athugið: Lokað verður fyrir skráningar mánudaginn 5. október

Sýning kvikmyndarinnar Sólskinsdrengurinn hefjast í kvöld

Mánudagur 28. september 2009

Nældu þér í miða á þessa frábæru og vel sóttu heimildarmynd, Sólskinsdrengurinn. Sýningar hefjast í kvöld í háskólabíó og fer hver að verða síðastur. Um er að ræða síðustu aukasýningar og verður hún sýnd aðeins í fjóra daga en myndin var fyrst frumsýnd 9. janúar ‘09.   Kvikmynd sem fær fólk til að hugsa að ekki er allt gefið í lífinu og til að ná árangri þarf að hlúa að markmiðum sínum.

Hægt er að kaupa miða á myndina í gegnum midi.is. Nánari upplýsingar um myndina er að finna á vefsíðu myndarinnar. » meira af: Sýning kvikmyndarinnar Sólskinsdrengurinn hefjast í kvöld

Clutterers Anonymous með kynningu í Geðhjálp

Mánudagur 28. september 2009

customLogoClutterers ætla að kynna sig þann 30.sept kl 13-14 í húsi Geðhjálpar Túngötu 7.

Er óreiða í umhverfinu þínu og hugsunum? Áttu fleiri eigur en þú þarft á að halda? Frestar þú hlutum? Áttu erfitt með að henda? Ertu með margar skúffur fullar af drasli?

Í Clutterers Anonymous lærir þú að gera heimilið að griðarstað og orkan þín mun endurnýjast. Líf þitt og umhverfi fer að einfaldast og það fer að skapast pláss fyrir hugsanir.
Allir sem hafa áhuga á að kynna sér starf Clutterers eru hjartanlega velkomnir.

Ítarlegri upplýsingar eru að finna á vefsíðu Clutterers Anonymous og Geðhjálp

6H.is – heilsuvefur fyrir fjölskylduna

Mánudagur 28. september 2009

Screen shot 2009-09-26 at 18.39.06Fræðsla um heilsu og þætti er tengjast henni er einn af mikilvægustu þáttum í heilsuvernd barna. Heilsuvefurinn www.6H.is er samstarfsverkefni Miðstöðvar heilsuverndar barna hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Lýðheilsustöðvar, Barnaspítala Hringsins og Landlæknisembættisins.

Markmið með þessum heilsuvef er að útvega áreiðanlegar upplýsingar frá fagfólki um heilsutengda þætti fyrir börn, unglinga og foreldra.

Sex hugtök sem byrja öll á H mynda umgjörð 6H heilsunnar þetta eru hugtökin:

hollusta, hreyfing, hamingja, hugrekki, hvíld og hreinlæti.

Sjöunda hugtakið sem er kynþroski hefur síðan skírskotun til tölustafsins 6. Að lokum eru slysavarnir og neytendaheilsa efnisflokkar sem ganga þvert á hina sjö efnisflokkana.  Við gerð fræðsluefnisins voru eftirfarandi atriði höfð að leiðarljósi:

  • Börnin átti sig á ákveðinni heildarmynd heilbrigðs lífsstíls:  6H heilsunnar
  • Skýr markmið sett fram með hverri fræðslu.
  • Áhersla á jákvæðar og styrkjandi leiðbeiningar.
  • Áhersla á gagnvirkan vef.
  • Áhersla á að þjóna hverjum markhópi fyrir sig, þ,e, börnum, unglingum og foreldrum.

Styrktartónleikar 30. september 2009

Sunnudagur 27. september 2009

styrktarogfraedslusjodurHaldnir verða styrktartónleikar miðvikudagskvöldið 30. september 2009. Tónleikarnir eru haldnir til styrktar Þú getur! forvarna- og fræðslusjóðsins sem var stofnaður 2008 og hefur það að markmiði að styrkja þá til náms sem átt hafa við geðræn veikinda að stríða, að efla nýsköpun og bætta þjónustu við geðsjúka á sviði fræðslu og forvarna og draga úr fordómum í samfélaginu.

Tónleikarnir verða haldnir í Bústaðarkirkju og opnar húsið kl. 19:30. Tónleikar hefjast kl 20:00 og enda kl 22:00. Þeir sem koma fram eru m.a. Klaufar, duett.is, Land og synir, Egill Ólafsson, Friðrik Ómar, Geir Ólafs, Jóhanna Guðrún og margir fleiri.

Miðasala fer fram í Lyfju í lágmúla og er miðaverð  2.900 kr

Hægt er að niðurhala dagskrá á PDF formi | 232kb

Nánari upplýsingar um forvarna- og fræðslusjóðin Þú getur! er m.a. að finna á  stress.is, kirkja.is, visir.is

Ungliðahreyfing Hugarafls

Laugardagur 26. september 2009

Ungliðahreyfing Hugarafls er hópur innan Hugarafls fyrir ungt fólk, sem stofnaður var þann 28. ágúst 2009. Hreyfingin er öllum opin, bæði meðlimum Hugarafls sem öðrum, 18 ára og eldri. Nýjir Ungliðar þurfa ekki að vera félagar í Hugarafli, en geta nýtt sér starfið í Ungliðahreyfingunni sem stökkpall inn í starfsemi Hugarafls. Einnig geta Ungliðar haft milligöngu um að koma nýjum félögum í forviðtöl hjá Hugarafli.

Starfsemin innan Hreyfingarinnar er mjög fjölbreytt, og er sífellt verið að auka við hana. Fastir fundir eru haldnir alla miðvikudaga kl. 18:00 í húsnæði Hugarafls, og er öllum velkomið að mæta.

Einnig eru haldin reglulega spilakvöld og vídeókvöld. Innan Hreyfingarinnar eru svo starfrækt áhugamannafélag um pípureykingar, kvikmyndaklúbbur, bókmenntaklúbbur, og ýmislegt annað er á prjónunum. Auk þess stendur til að fara í bíóferðir, halda keilukvöld, fara í LazerTag og ýmislegt annað. Öllum er velkomið að mæta í klúbbana eða ferðirnar, og á spila- og bíókvöldin.

Auk þess er Ungliðahreyfing Hugarafls hóp á Facebook .

Nánari upplýsingar á hugarafl.is

Alþjóðlegur hjartadagur – 27. september 2009

Laugardagur 26. september 2009

hjartadagur-dHjartadagurinn er haldinn á heimsvísu síðasta sunnudag í september ár hvert en það er Alþjóðahjartasambandið (World Heart Federation) með stuðningi frá Alþjóðaheilbrigðisstofnunni (WHO og UNESCO) sem hvetur aðildarfélög sín um allan heim til að halda upp á Hjartadaginn. Hjartarvernd er aðildarfélagi Alþjóðahjartasambandsins. Markmið Hjartadagsins, sem yfir 100 þjóðir taka þátt í um allan heim, er að auka vitund og þekkingu almennings á ógnum hjarta- og æðasjúkdóma og leggja áherslu á heilbrigða lífshætti svo að börn, unglingar og fullorðnir um allan heim öðlist betra og lengra líf. Á hverju ári falla í valinn í heiminum rúmlega 17.5 milljónir manna og kvenna af völdum hjarta- og æðasjúkdóma og eru þessir sjúkdómar algengasta dánarorsök alls mannkyns og er Ísland þar engin undantekning þar sem um 700 manns deyja árlega vegna sjúkdóma í blóðrásarkerfi.

Nánar er hægt að lesa um Alþjóðlega hjartadaginn með því að smella hér og á vefsíðu Hjarta.is » meira af: Alþjóðlegur hjartadagur – 27. september 2009

Óskað eftir málverkum fyrir 10. október ‘09

Föstudagur 25. september 2009

Óskað er eftir málverkum til sýningar í Mjóddinni  á Alþjóða geðheilbrigðisdaginn. Klúbburinn Geysir sér um allt utanumhald og er hægt að senda póst á bjork@talnet.is fyrir 5. október næstkomandi fyrir þá sem vilja vera með.

Gott tækifæri fyrir þá sem vilja koma sínum listaverkum á framfæri eða sölu á þessum geðgóða degi :)