Archive for október, 2008

Gaman í Perlunni

Föstudagur 24. október 2008

Jæja þá er dagskráin í Perlunni 10. október sl. afstaðin og gaman að segja frá því að þarna voru bæði börn, ungmenni og fullorðnir samankomin og ekki annað að sjá en að flestir hafi skemmt sér vel eða notið þess að vera þarna og fengið upplýsingar sem koma að góðum notum. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, setti dagskrána með þessum orðum og var það vel við hæfi. Munum það að samvera er okkur öllum mikilvæg og þá sér í lagi á tímum sem þessum þá er um að gera að snúa bökum, og njóta þes að vera saman. Ég hef t.a.m. orðið var við það að undanförnu, þegar ég hef farið í sund með dóttir minni og vinum hennar, að það hefur fjölgað í heita pottinum þar sem fólk er að ræða og hlæja saman.

Geðhlaup Geðhjálpar

Miðvikudagur 8. október 2008

Hið árlega Geðhlaup verður laugardaginn, 11 október n.k. , en þetta er í sjöunda sinn sem það er þreytt. Rásmarkið er í Nauthólsvík, þaðan sem lagt verður upp klukkan 13. Þáttakendur geta valið um annað hvort tveggja kílómetra skemmtiskokk eða tíu kílómetra hlaup með tímatöku og taka þá skeiðið inn Fossvogsdalinn og allt upp í Elliðaárdal, hvar þeir snúa við aftur á upphafsreitinn. Þátttakendur eru hvattir til að mæta hálftíma fyrir hlaupið við ylströndina í Nauthólsvík.

Liðsmenn í Félagi maraþonahlaupara koma Geðhjálp til aðstoðar við hlaup þetta líkt og undangengin ár. Hér á yfirskrift alþjóða geðheilbrigðisdagsins í ár; „Hlúðu að því sem þér þykir vænt um“ vel við. Rauður þráður í málflutningi Geðhjálpar og annara hefur á síðustu árum verið sá að engin sé heilsan án geðheilbrigðis. Í því sambandi er mikilvægi hollrar hreyfingar undirstrikað og til hennar hvatt.

Verðlaun eru veitt að loknu hlaupi fyrir fyrstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki. Nánari upplýsingar er m.a. að finna á vefnum: www.hlaup.is

Hlaupið er ævinlega sem næst Alþjóða geðheilbrigðisdeginum, sem er 10. október ár hvert, en af hagkvæmisaðstæðum er laugardagurinn 11. október valinn. Þátttaka hefur verið með ágætum og vaxandi frá ári til árs. Að hlaupi loknu stendur fólki til boða að bjóða Ægi byrginn og taka sundsprett út frá sjósetningarrennunni austan við ylströndina. Hitastig sjávar á þessum árstíma eru tæpar 8°C.

Í ljósi þess að alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er dagur okkar allra hver svo sem við erum þá hvetum við sem flesta til þátttöku til að viðhalda og ekki síður efla geðheilbrigði sitt.

Skákmót

Þriðjudagur 7. október 2008

Að venju er haldið skákmót í tilefni alþjóðlegs geðheilbrigðisdags, og fer það fram laugardaginn 11. okt. kl. 14:00 í Perlunni.
Skákfélag Vinjar og Hrókurinn hafa tekið að sér umsjón með þessu árlega móti frá upphafi.

» meira af: Skákmót

Nýr vefur um geðheilsu barna – umhuga.is

Þriðjudagur 7. október 2008

Í dag opnaði Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra nýjan fræðsluvef um geðheilsu barna sem ber heitið www.umhuga.is. Á nýja vefnum verður hægt nálgast upplýsingar um helstu þætti í uppeldi og aðstæðum barna og unglinga sem hafa áhrif á geðheilsu þeirra á uppvaxtarárunum. Upplýsingarnar eru ætlaðar foreldrum og öðrum uppalendum, fagfólki sem vinnur með börnum og unglingum á einn eða annan hátt, og ekki síst börnum og unglingum sjálfum. » meira af: Nýr vefur um geðheilsu barna – umhuga.is

Æskulýðsfélög kirkjunnar og Alþjóða geðheilbrigðisdagsins

Þriðjudagur 7. október 2008

Þjóðkirkjan sinnir viðamiklu barna og æskulýðsstarfi. Í flestum söfnuðum landsins er sunnudagaskóli og ýmis tilboð fyrir krakka á öllum aldri. Æskulýðsfélög eru starfrækt í framhaldi fermingarfræðslunnar og síðan eru margir söfnuðir í góðu samstarfi við grunn- og leikskóla. Faglegt hópastarf er víða í gangi. Kirkjan miðlar trú, von og kærleika með starfi sínu og öllu því sem hún er.

Æskulýðssamband kirkjunnar og miðborgarprestur Dómkirkjunnar hafa kallað eftir þátttöku æskulýðsfélaga kirkjunnar í verkefni sem tengt er alþjóðageðheilbrigðisdeginum.

Verkefnið er þrenns konar. Í fyrsta lagi er stutt kynning á alþjóðageðheilbrigðisdeginum. Í annan stað er stutt fræðsla um mikilvægi góðra samskipta við foreldra og forráðamenn. Í tengslum við þá fræðslu er spurningarlista dreift þar sem spurt er um tengsl og samskipti, virðingu og viðhorf foreldra til barna og barna til foreldra. Í þriðja lagi eru unglingarnir hvattir til að skrifa bréf til foreldra sinna, bréf á jákvæðum nótum og er boðið upp á aðstoð til þess.

Þorvaldur Víðisson

Miðborgarprestur Dómkirkjunnar

Blaðamannafundur í Hagaskóla

Mánudagur 6. október 2008

Geðheilbrigðisdagurinn hefur fengið eigin heimasíðu www.10okt.com og var hún formlega opnuð á blaðamannafundi í Hagaskóla fyrr í dag. Síðan verður þróuð áfram í samstarfi við ungt fólk en markmið hennar er að veita fræðslu um geðrækt og að aðstoða við skipulagningu geðræktarviðburða. Það var Elín Eyþórsdóttir söngkona, sem jafnframt tekur þátt í dagskránni á Geðheilbrigðisdaginn 10.okt, sem opnaði vefinn með því að skrá inn fyrsta viðburðinn í geðræktarátakinu “eitt í einu”.

Geðræktarbolir til sölu í Gylta Kettinum og Dogma

Laugardagur 4. október 2008

Tískuverslunin Gylti kötturinn Austurstræti 18 og Dogma Laugarvegi 30 munu frá og með mánudeginum 6 nóvember selja geðræktarboli á 1000 kr stykkið. Ragnheiður Sverrisdóttir (Jonna) mun þó eftir sem áður hafa yfirumsjón með sölu og dreifingu bolanna. Þeir sem vilja verða sér úti um boli geta því annaðhvort haft samband við Jonnu ( Jonna@simnet.is Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  - gsm, 8960935) eða, ef menn eru staddir í miðbænu, gert sér ferð í Gylta köttinn.

Geðræktarbolir til sölu

Miðvikudagur 1. október 2008

Geðræktarbolir sem framleiddir eru í tilefni af 10 október eru komnir úr prentun og mun Ragnheiður Sverrisdóttir ( jonna@simnet.is ) annast sölu og dreifingu þeirra. Fyrsti bolurinn var seldur nú í morgun í húsnæði Geðhjálpar, Túngötu 7. Kaupandinn var fjöllistamaðurinn Eyjólfur Kolbeins sem m.a. hefur haldið myndlistasýningar í Ráðhúsinu og í Klúbbnum Geysi. Bolirnir kosta 1000 kr stykkið og rennur söluhagnaður í að framleiða fleiri boli handa þeim nemendum grunnskóla og framhaldsskóla sem taka þátt í að leysa sérstök geðræktarverkefni sem verða hönnuð í tengslum við daginn.

Lífsleiknihópur hittast að tilefni Geðheilbrigðisdagsins

Miðvikudagur 1. október 2008

Lífsleiknikennarar í Iðnskólanum í Hafnarfirði ætlum að hópa sig saman sunnudagskvöldið 5. okt. og leggja stund á uppbyggilega samveru. Tilefnið er Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn. Þrír lífsleiknihópar ætla að hittast, ásamt nemendaráði, ætla að hittast af þessu tilefni í Gamla bókasafninu og kitla hláturtaugarnar með því að horfa á Dagvaktina saman.Eftir dagvaktina er ætlunin að eyða kvöldinu saman, spjalla, spila, horfa á sjónvarpið, keppa í gitar-hero o.s.frv.