Archive for september, 2008

Elín Eyþórsdóttir gefur kost á sér

Föstudagur 26. september 2008

Vegna mikilla anna átti Ragnheiður Gröndal ekki tök á því að koma fram í Perlunni föstudaginn 10 okt. Eftir ábendingu frá Ragnheiði var haft samband við Elínu Eyþórsdóttur, unga ogefnilega söngkonu. Ellen hefur nú gefið kost á sér og mun hún að öllum líkindum hita upp annaðhvort fyrir Borgarstjóra eða formann Velferðarráðs. Elín fékk sitt fyrsta stóra tækifæri nú um dagin nþegar hún hitaði upp fyrir bresku hljómsveitina Tindersticks á Nasa.

Borgarstjóri boðin þátttaka í 10. október

Þriðjudagur 23. september 2008

Vegna yfirfærslu geðheilbrigðismála frá Ríki til Borgar hefur verið ákveðið að bjóða Hönnu Birnu Kristjánsdóttur Borgarstjóra að flytja erindi í Perlunni á geðheilbrigðisdaginn. Ef Hanna Birna hefur tök á því að vera með er líklegt að hún slíti dagskránni, verði með síðasta innleggið. Það þótti viðeigandi að gefa borgarstjóra færi á  að lýsa stefnu og framtíðarsýn stærsta sveitarfélags í þessum stóra málaflokki eftir yfirtöku á honum . Búist er við svari á næstu dögum.