Fréttir af ‘Geðhjálp’

Landsamtök Geðhjálpar 30 ára í dag

Föstudagur 9. október 2009

Forsvarsmenn 10okt.com óskar Landssamtök Geðhjálpar til hamingju með 30 ára afmælið í dag.

Landssamtökin Geðhjálp voru stofnuð 9. október 1979 og eru hagsmunasamtök þeirra sem þurfa aðstoð vegna geðrænna vandamála, aðstandenda þeirra og annarra er láta sig geðheilbrigðismál varða.

Sjá nánar á gedhjalp.is

Andleg sjálfsvörn

Miðvikudagur 7. október 2009

Á alþjóða geðheilbrigðisdeginum, þann 10. október, verður Sigursteinn Másson með fyrirlesturinn „Andleg sjálfsvörn“ í húnsæði Geðhjálpar, að Túngötu 7 í Reykjavík. Erindi Sigursteins hefst kl 16:00. » meira af: Andleg sjálfsvörn

Clutterers Anonymous með kynningu í Geðhjálp

Mánudagur 28. september 2009

customLogoClutterers ætla að kynna sig þann 30.sept kl 13-14 í húsi Geðhjálpar Túngötu 7.

Er óreiða í umhverfinu þínu og hugsunum? Áttu fleiri eigur en þú þarft á að halda? Frestar þú hlutum? Áttu erfitt með að henda? Ertu með margar skúffur fullar af drasli?

Í Clutterers Anonymous lærir þú að gera heimilið að griðarstað og orkan þín mun endurnýjast. Líf þitt og umhverfi fer að einfaldast og það fer að skapast pláss fyrir hugsanir.
Allir sem hafa áhuga á að kynna sér starf Clutterers eru hjartanlega velkomnir.

Ítarlegri upplýsingar eru að finna á vefsíðu Clutterers Anonymous og Geðhjálp

Fyrirlestur um meðvirkni

Þriðjudagur 22. september 2009

Fimmtudaginn 1.okt kl 20:00 – 22:00 mun Díana Ósk Óskarsdóttir ICADC ráðgjafi vera með fyrirlestur í húsi Geðhjálpar Túngötu 7 og mun hann fjalla um meðvirkni. Í stuttu máli segir Díana að meðvirkni sé fjöldskyldusjúkdómur. Ef ein manneskja er meðvirk þá hefur það áhrif á alla í kringum hann. Hún mun tala um hverjir geta orðið meðvirkir, einkenni meðvirkni og hvernig er hægt að vinna sig frá meðvirkni. » meira af: Fyrirlestur um meðvirkni

Lengdur opnunartími í Geðhjálp á miðvikudögum

Þriðjudagur 22. september 2009

Á miðvikudögum mun Geðhjálp vera með félagsmiðstöðina opna  til 15:30.

Dagskránin er sem hér segir:

Kl 10-14  Í byrjun dags er opið í listsmiðju undir leiðsögn Örnu Jónsdóttur. Það er ýmislegt gert sér til gamans og má þar meðal annars nefna glermálun, kertamálun, kortagerð og margt margt fleira. Allir velkomnir að koma og vera með.

Kl 12-13 Hádegismatur er auðvitað reiddur fram undir vægu gjaldi – að hætti Ingibjargar.

Kl 13-14  12 sporakynning  en næsta miðvikudag munu SASA samtökin koma og kynna sig. SASA samtökin eru samtök fólks sem hefur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Allir sem hafa áhuga á að kynna sér hvað SASA samtökin standa fyrir og eru að gera eru hjartanlega velkomnir.

Kl 14-15:30 Kaffihúsastemming og opið í billjard, listsmiðju og tölvuveri . Einnig verður kaffi og kökur til sölu gegn vægu gjaldi en næsta miðvikudag mun ágóðinn verða til styrktar listsmiðju Geðhjálpar.

Geðhjálp.is