Geðveikir dagar verða haldnir 22. og 23. september 2009 á Suðurnesjum.
Geðveikir dagar eru fyrir alla, markmið daganna er að vekja hin dæmigerðu „Jón og Gunnu“ til meðvitundar um að huga að eigin heilsu. Góð geðheilsa felur ekki aðeins í sér að vera laus við geðsjúkdóma. Hún einkennist meðal annars af jákvæðri sjálfsmynd, ánægju í lífi og starfi og getu til að aðlagast breytilegum aðstæðum.
Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup.
Björgin.is
Hægt er að kaupa okkar vinsælu geðræktarboli með því að hafa samband við hana Ragnheiði J. Sverrisdóttur (Jonna) Verkefnastjóri í síma 896-0935 
