Nú fer í hönd fjórði starfsvetur Töframáttar tónlistar. Líkt og síðastliðinn vetur verða tónleikarnir haldnir á Kjarvalsstöðum og hefjast kl. 14:00 á mánudögum.
Fyrstu tónleikar vetrarins verða mánudaginn 19. október en þá munu þau Gunnar Kvaran sellóleikari og Elísabet Waage hörpuleikari flytja tónleikadagskrá. Tónleikar vetrarins verða fernir í allt 19. október, 30. nóvember, 22. mars og 26. apríl.
Töframáttur tónlistar er heiti á tónleikaröð sem Gunnar Kvaran kom á fót árið 2006 svo þeim sem minna mega sín í þjóðfélaginu gefist tækifæri til að hlusta á vandaða tónlist í fyrsta flokks flutningi – endurgjaldslaust.
Vonandi sjáumst við sem flest og njótum stundarinnar.
Hægt er að kaupa okkar vinsælu geðræktarboli með því að hafa samband við Hugarafl Borgartúni 22, 2. hæð Sími 414-1550