Forvarnardagur 2009 er haldinn í öllum grunnskólum landsins í dag. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu.
Forvarnardagurinn er haldin að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
Verkefnið er stutt af lyfjafyrirtækinu Actavis.
- Rannsóknir hafa leitt í ljós að unglingar foreldra sem vita gjarnan hvar þeir eru á kvöldin og með hverjum, eru ólíklegri til að neyta fíkniefna en þeir unglingar sem eru undir minna eftirliti.
- Því meiri tíma sem foreldrar verja með unglingum því ólíklegra er að þeir leiðist út í fíkniefnaneyslu.
- Þeir unglingar sem telja sig auðveldlega geta fengið stuðning frá foreldrum sínum eru ólíklegri en aðrir til að leiðast inn á braut fíkniefnaneyslu.
- Foreldrar sem þekkja aðra foreldra í hverfinu og vini barna sinna draga úr líkum á því að unglingar ánetjist fíkniefnum. Það þarf heilt þorp til að ala upp eitt barn.
- Samstarf foreldra, þar með talið þátttaka í skólastarfi, æskulýðs- og íþróttastarfi og foreldrarölt, er mjög af hinu góða. Þekktu foreldra skólafélaga og vina unglinga þinna og vertu hluti af samfélagi og neti foreldra. Láttu þig varða hag unglinga almennt.
- Unglingar sem stunda skipulagt íþrótta-og æskulýðsstarf undir leiðsögn ábyrgra aðila eru ólíklegri til að leiðast út í fíkniefnaneyslu eða aðra óæskilega hegðun.
- Því lengur sem unglingar sniðganga áfengi því ólíklegra er að þeir ánetjist fíkniefnum. Hvert ár skiptir á máli.
- Öflugt forvarnarstarf þarf að beinast að því að bæta umhverfi unglinga. Miklu skiptir að allir vinni saman; foreldrar, kennarar og þeir sem skipuleggja íþrótta- og æskulýðsstarf. Allir þessir aðilar verða að leggjast á eitt eigi góður árangur að nást. Forvarnarstarf er grasrótarstarf.
Nánari upplýsingar um hvernig þú getur tekið þátt er að finna á vefsíðu forvarnadagur.is