Fréttir af ‘Lýðheilsustöð’

Norræn ráðstefna: Welfare in Times of Crises

Þriðjudagur 13. október 2009

Norræn rástefna: Welfare in Times of Crises, verður haldin á  Hótel Sögu, 21. október frá klukkan kl. 9:00 til 16:15.

Á ráðstefnunni verður að finna fjölda áhugaverðra fyrirlestra, s.s um áhrif efnahagsþrenginga á heilsu og líðan, áhrif alþjóðagjaldeyrissjóðsins á heilbrigðiskerfi þeirra landa sem þeir aðstoða, reynslu Norðurlandaþjóðanna, kynntar verðar niðurstöður íslenskra rannsókna ásamt úrræðum sem unnið er að í íslensku samfélagi. Einnig er gert ráð fyrir umræðu með þátttakendum um hvers konar samfélag við viljum búa í.

Ráðstefnan fer fram á ensku og er öllum opin án endurgjalds.

Skráning fer fram á  lydheilsustod.is

Sækja auglýsingu á PDF 2.2mb

Hafa íslendingar fordóma gagnvart geðrænum vandamálum?

Þriðjudagur 13. október 2009

Niðurstöður birtar úr einni stærstu alþjóðlegu rannsókn sem gerð hefur verið á þessu sviði.

Tökum öll þátt í umræðum um framtíðarsýn og stefnumótun!!

Þann 3.nóvember 2009 er fyrirhuguð ráðstefna sem mun fjalla um fordóma gagnvart einstaklingum með geðræn vandamál frá sjónarhorni félagsfræði, geðlæknisfræði og notenda. Megintilgangur ráðstefnunnar er að kynna niðurstöður úr nýlegri könnun á viðhorfum Íslendinga til geðrænna vandamála en að rannsókninni standa þau Sigrún Ólafsdóttir, lektor í félagsfræði við Boston University og Jón Gunnar Bernburg, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Hugarafl, Geðlæknafélag Íslands, Félags- og Mannvísindadeild Háskóla Íslands og Félagsfræðingafélag Íslands. » meira af: Hafa íslendingar fordóma gagnvart geðrænum vandamálum?

10. Geðorð: Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast

Laugardagur 10. október 2009

Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast

Eitt af því sem einkennir hamingjusamt fólk er að það telur sig hafa náð markmiðum í lífinu sem skipta máli. Þeir sem setja sér markmið og stefna að þeim ná yfirleitt lengra en hinir sem ekki hafa ákveðna stefnu. Að ná settu markmiði getur verið mjög ánægjulegt, styrkjandi og hvetjandi til að halda áfram. » meira af: 10. Geðorð: Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast

9. Geðorð: Finndu og ræktaðu hæfileika þína

Föstudagur 9. október 2009

Finndu og ræktaðu hæfileika þína

Allir búa yfir einhverjum hæfileikum og það er mikilvægt að við leitum að hæfileikum okkar og ræktum þá. Þegar hæfileikar okkar fá að njóta sín vinnum við eftir bestu getu. Við slíkar aðstæður náum við að vera stolt og ánægð af verkum okkar. Ef okkur finnst að við náum ekki að nýta hæfileika okkar í vinnu eða skóla er mikilvægt að við finnum hæfileikum okkar farveg í einhverju áhugamáli. Þannig er hægt að rækta hæfileikana og vera sáttur við störf sín. » meira af: 9. Geðorð: Finndu og ræktaðu hæfileika þína

8. Geðorð: Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup

Fimmtudagur 8. október 2009

Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup

Í áttunda geðorðinu er velgengni í lífinu líkt við langhlaup. Því betur sem við undirbúum okkur fyrir langhlaupið því minni hætta er á að við ofkeyrum okkur. Það sama á við í lífinu, því betur sem við undirbúum okkur fyrir það sem á vegi okkar verður því betur gengur okkur. Þess vegna er mikilvægt að byggja sig upp og styrkja bæði andlega og líkamlega. » meira af: 8. Geðorð: Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup

7. Geðorð: Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig

Miðvikudagur 7. október 2009

Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig

Fæstir hafa gaman af því að fá fólk upp á móti sér og flestir vilja hafa ánægjuleg samskipti við fólkið í kringum sig. Að vera góður í mannlegum samskiptum er góður kostur. Líklega eigum við misauðvelt með samskipti við annað fólk en það er öruggt að allir geta bætt samskipti sín við aðra. » meira af: 7. Geðorð: Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig

6. Geðorð: Flæktu ekki líf þitt að óþörfu

Þriðjudagur 6. október 2009

Flæktu ekki líf þitt að óþörfu

Sjötta geðorðið um að flækja ekki líf sitt að óþörfu er í hrópandi mótsögn við skilaboð auglýsinganna þar sem reynt er að sannfæra fólk um nauðsyn þess að eignast tölvu, farsíma og fleira til að geta lifað af daginn. Mikilvægt er að átta sig á því að þessir hlutir eru ekki nauðsynlegir til að okkur geti liðið vel. » meira af: 6. Geðorð: Flæktu ekki líf þitt að óþörfu

Minningar- og bænastund til eineltsforvarna í Bústaðarkirkju

Mánudagur 5. október 2009
Auglýsing fyrir 6. okt

Auglýsing | Smellið til að stækka

Í tilefni eins árs afmælis Liðsmanna Jerico, stuðningssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda verður haldin minningar- og bænastund til eineltsforvarna í Bústaðarkirkju þriðjudaginn 6. október kl. 20:00 – 21:30.

Við ljúkum kærleiksstundinni fyrir utan kirkjuna þar sem blöðrum verður sleppt til minningar um þá sem eineltið hefur veikt og fellt. Marglitar blöðrur og við þær getur fólk bundið orðsendingu, bænir, óskir eða þrár og sleppt þeim til himins. Miðar og pennar afhentir við innganginn.

Nánari upplýsingar á lydheilstustod.is

5. Geðorð: Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina

Mánudagur 5. október 2009

Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina

Geðrækt er þýðing á því sem á ensku er nefnt „mental health promotion“ og er þá átt við allt það sem gert er til að hlúa að geðheilsunni. Þar sem geðrækt er frekar nýtt hugtak getur verið gott að útskýra það með tilvísun í líkamsrækt. Allir vita hvað líkamsrækt er og þekkja mikilvægi þess að rækta líkamann til að draga úr líkamlegum kvillum. Þetta er þó langt frá því að vera tvennt aðskilið. Það að rækta líkamann hefur bein áhrif á andlega líðan og því er fimmta geðorðið hvatning um að hreyfa sig daglega. Flestir kannast við þá vellíðan sem fylgir því að taka á líkamlega. Í kjölfar slíkra átaka flæða hormón um líkamann sem veita okkur vellíðan sem er eftirsóknaverð og heilbrigð. » meira af: 5. Geðorð: Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina

4. Geðorð: Lærðu af mistökum þínum

Sunnudagur 4. október 2009

Lærðu af mistökum þínum

Þriðja geðorðið fjallar um það að halda áfram að læra svo lengi sem við lifum. Fjórða geðorðið er um mikilvægasta lærdóminn; það að læra af mistökunum. Það er mikilvægt að átta sig á því að enginn hefur lofað því að lífið verði auðvelt og alltaf sanngjarnt. Með því að gera ráð fyrir mótlæti er hægt að vinna sér inn smá forskot og láta það ekki koma sér á óvart þegar mótlæti eða erfiðleikar gera vart við sig. Eins er það með mistökin. Allir gera einhvern tímann mistök, það er eins gott að sætta sig við það strax. Enginn er fullkominn og það sem betra er: enginn getur ætlast til þess af okkur að við séum fullkomin. » meira af: 4. Geðorð: Lærðu af mistökum þínum