Hjartadagurinn er haldinn á heimsvísu síðasta sunnudag í september ár hvert en það er Alþjóðahjartasambandið (World Heart Federation) með stuðningi frá Alþjóðaheilbrigðisstofnunni (WHO og UNESCO) sem hvetur aðildarfélög sín um allan heim til að halda upp á Hjartadaginn. Hjartarvernd er aðildarfélagi Alþjóðahjartasambandsins. Markmið Hjartadagsins, sem yfir 100 þjóðir taka þátt í um allan heim, er að auka vitund og þekkingu almennings á ógnum hjarta- og æðasjúkdóma og leggja áherslu á heilbrigða lífshætti svo að börn, unglingar og fullorðnir um allan heim öðlist betra og lengra líf. Á hverju ári falla í valinn í heiminum rúmlega 17.5 milljónir manna og kvenna af völdum hjarta- og æðasjúkdóma og eru þessir sjúkdómar algengasta dánarorsök alls mannkyns og er Ísland þar engin undantekning þar sem um 700 manns deyja árlega vegna sjúkdóma í blóðrásarkerfi.
Nánar er hægt að lesa um Alþjóðlega hjartadaginn með því að smella hér og á vefsíðu Hjarta.is » meira af: Alþjóðlegur hjartadagur – 27. september 2009
Hægt er að kaupa okkar vinsælu geðræktarboli með því að hafa samband við hana Ragnheiði J. Sverrisdóttur (Jonna) Verkefnastjóri í síma 896-0935 
