Fréttir af ‘Hugarafl’

Ungliðahreyfing Hugarafls

Laugardagur 26. september 2009

Ungliðahreyfing Hugarafls er hópur innan Hugarafls fyrir ungt fólk, sem stofnaður var þann 28. ágúst 2009. Hreyfingin er öllum opin, bæði meðlimum Hugarafls sem öðrum, 18 ára og eldri. Nýjir Ungliðar þurfa ekki að vera félagar í Hugarafli, en geta nýtt sér starfið í Ungliðahreyfingunni sem stökkpall inn í starfsemi Hugarafls. Einnig geta Ungliðar haft milligöngu um að koma nýjum félögum í forviðtöl hjá Hugarafli.

Starfsemin innan Hreyfingarinnar er mjög fjölbreytt, og er sífellt verið að auka við hana. Fastir fundir eru haldnir alla miðvikudaga kl. 18:00 í húsnæði Hugarafls, og er öllum velkomið að mæta.

Einnig eru haldin reglulega spilakvöld og vídeókvöld. Innan Hreyfingarinnar eru svo starfrækt áhugamannafélag um pípureykingar, kvikmyndaklúbbur, bókmenntaklúbbur, og ýmislegt annað er á prjónunum. Auk þess stendur til að fara í bíóferðir, halda keilukvöld, fara í LazerTag og ýmislegt annað. Öllum er velkomið að mæta í klúbbana eða ferðirnar, og á spila- og bíókvöldin.

Auk þess er Ungliðahreyfing Hugarafls hóp á Facebook .

Nánari upplýsingar á hugarafl.is

Geðveikar batasögur

Föstudagur 25. september 2009
gedveikar-batasogur

Geðveikar batasögur

Nýlega var gefin út bókin „Geðveikar batasögur“ af Herdísi Benediktsdóttur Hugaraflskonu. Þarna stíga 13 einstaklingar fram og segja sögu sína, ræða af einlægni um baráttuna, sigra og ósigra, leiðina til batans, aukins sjálfstrausts og virðingar. Að opna reynsluheim sinn gefur von um að hjálpa öðrum, er fyrirmynd og getur minnkað fordóma. Hér er á ferð mikil forvörn sem vert er að huga að um ókomna framtíð.

Þessi hugmynd, að taka saman batasögur einstaklinga með geðræn vandamál, er ekki ný af nálinni. Núna virðist vera rétti tíminn. Margir einstaklingar hafa náð undraverðum bata síðustu árin og þora að horfa framan í heiminn og segja batasögu sína. Óskandi er að sögurnar fræði, veki upp spurningar og undrun. Síðast en ekki síst, að fordómar víki fyrir skilningi. Og einstaklingum með geðræn vandamál aukist þor og sjálfsskilningur. Eymundsson

Vítt og breitt er morgunþáttur með  fróðleik, vangaveltum, spjalli og tónlist. Sagt er frá nýútkominni bók sem hefur að geyma sögur höfunda sem eiga það sameiginlegt að hafa glímt við erfið geðræn veikindi. Bókin heitir Geðveikar batasögur og ritstjórinn, Herdís Benediktsdóttir, kemur í heimsókn og segir frá bókinni. Hlustaðu á þáttinn

Nánari upplýsingar eru að finna á hugarafl.is

Nýlega var gefin út bókin „Geðveikar batasögur“ af Herdísi Benediktsdóttur Hugaraflskonu. Þarna stíga 13 einstaklingar fram og segja sögu sína, ræða af einlægni um baráttuna, sigra og ósigra, leiðina til batans, aukins sjálfstrausts og virðingar. Að opna reynsluheims sinn gefur von um að hjálpa öðrum, er fyrirmynd og getur minnkað fordóma. Hér er á ferð mikil forvörn sem vert er að huga að um ókomna framtíð.