Fréttir af ‘Klúbburinn Geysir’

Að auka persónulegan styrk sinn

Fimmtudagur 24. september 2009
ingrid

Ingrid Kuhlman

Fimmtudaginn 15. október heldur Ingrid Kuhlman námskeið í Klúbbnum Geysi. Námskeiðið heitir ‘Að auka persónulegan styrk sinn’. Námskeiðið verður haldið frá 13:30 til 15:30.

Meðal þess sem er tekið fyrir á námskeiðinu:

  • Sjö þættir tilfinningalegs styrks.
  • Mat á aðstæðum og orsökum.
  • Áhrif hugsana á hegðun.
  • Tæki og tól til að auka tilfinningalegan sveigjanleika.

Hvetjum við félaga til að taka þátt í námskeiðinu en Ingrid er velunnari okkar. Námskeið sem hún hefur haldið hér vakti mikla og verðuga athygli og var afar skemmtilegt og fróðlegt.

Nánari upplýsingar eru á vef Þekkingarmiðlunar